8. maí 2026
Opinn fundur um Land­eyja­höfn í Vest­manna­eyjum

Vegagerðin mun halda opinn fund í Vestmannaeyjum 2. júní næstkomandi þar sem fjallað verður um Landeyjahöfn, stöðuna í vetur og áskoranir við dýpkun hafnarinnar. Farið verður yfir hvernig dýpkun hefur gengið undanfarin ár í samanburði við nýliðin vetur. Þá verðar frumniðurstöður skýrslu dönsku sérfræðinganna hjá DHI A/S sem er skammstöfun fyrir Danska straumfræði stofan.

Forstjóri Vegagerðarinnar og sérfræðingar hennar verða með erindi þar sem þetta hvorttveggja er kynnt og að því loknu verður opnað fyrir spurningar frá fundargestum.

Vinna DHI A/S hófst haustið 2024. Markmiðið með vinnunni var að finna leiðir til að auka nýtingu Landeyjahafnar. Fyrsta skrefið var að setja upp sandburðarlíkan og var unnið með 15 ára gagnasafn til að kvarða líkanið sem er tilbúið. Líkanið hefur síðan verið nýtt til þess að skoða mögulegar breytingar á höfninni og umhverfinu í kringum hana.

Á fundinum í júní verða svo kynntar frumniðurstöður þessara rannsókna og hugmyndir Vegagerðarinnar varðandi næstu skref.

DHI A/S hefur unnið í samstarfi við Vegagerðina að rannsóknum á ýmsum stöðum á Íslandi bæði í Landeyjahöfn og annars staðar og hefur víðtæka reynslu og þekkingu á þessu fræðasviði.

Fundartími og staðsetning verða auglýst síðar.

Landeyjahöfn

Landeyjahöfn

Landeyjahöfn

Landeyjahöfn