24. september 2026
Opið hús hjá Vega­gerð­inni í Fella­bæ

Vegagerðin býður til opins húss í endurnýjuðum húsakynnum þjónustustöðvarinnar í Fellabæ fimmtudaginn 1. október kl. 17:00. Öll eru velkomin og verður boðið upp á veitingar.

Þjónustustöð Vegagerðarinnar í Fellabæ.

Þjónustustöð Vegagerðarinnar í Fellabæ.

Undanfarið hefur verið unnið að umfangsmiklum endurbótum á þjónustustöð Vegagerðarinnar í Fellabæ. Starfsaðstaðan hefur verið bætt til muna og húsnæðið er nú betur í stakk búið til að þjóna starfsemi Vegagerðarinnar á Austurlandi.

Í tilefni af verklokum verður húsið opnað gestum og gefst þeim tækifæri til að skoða endurnýjað húsnæðið og kynnast starfsemi Vegagerðarinnar á svæðinu.

Við athöfnina flytja fulltrúar Vegagerðarinnar, sveitarfélagsins og verktaka stutt ávörp. Einnig verður boðið upp á skemmtiatriði og veitingar.

Yngri gestir ættu einnig að finna eitthvað við sitt hæfi en bílar og tæki Vegagerðarinnar verða til sýnis og börnum gefst kostur á að setjast upp í þau og skoða.

Endurbætur á þjónustustöðinni eru liður í uppbyggingu Vegagerðarinnar á Austurlandi. Markmiðið er meðal annars að skapa góða og nútímalega starfsaðstöðu fyrir starfsfólk þjónustustöðvarinnar og aðra starfsmenn Vegagerðarinnar sem starfa eða hafa viðveru á svæðinu.

Opið hús verður í þjónustustöð Vegagerðarinnar í Fellabæ, Smiðjuseli 1, fimmtudaginn 1. október kl. 17:00. Öll eru hjartanlega velkomin.