Upplýsingavefurinn Sjólag.is hefur verið uppfærður og endurbættur með það að markmiði að bæta aðgengi að sjólags-, veður- og sjávarfallsspám. Á meðal helstu nýjunga er að spásvæði hefur verið stækkað verulega, mögulegt er að sækja gögn aftur í tímann og framsetning gagna er notendavænni.

Allar upplýsingar um sjólag eru komnar á einn stað, www.sjolag.is
Með uppfærslunni hafa allar upplýsingar úr eldra veður- og sjólagsupplýsingakerfi verið færðar yfir á sjolag.is. Þannig eru nú allar upplýsingar tengdar sjólagi komnar á einn stað, í samræmt og notendavænt viðmót þar sem gagnvirkt kort gegnir lykilhlutverki. Auk þess hefur spásvæðið verið stækkað verulega og nær nú frá svæðum rétt niður fyrir Írland í suðri og norður í Barentshaf.
Líkt og áður er hægt að skoða hefðbundna ölduspá en því til viðbótar er núna hægt að skoða undirölduna og vindölduna í sitthvoru lagi. Enn fremur er komið kort sem sýnir spá um sjávarhæð og kort sem sýnir sérstaklega spá á sjávarfallastraumnum. Allar sjávarfallaspár á kortinu hafa verið settar í svokallað hafnarkerfi, sem þýðir að þær miðast við sjókortanúll en ekki við meðalsjó eins og áður.
Þá er hefur bæst við sá möguleiki að sækja gögn aftur í tímann sem sýna mælingar úr ölduduflunum og verður það von bráðar í boði fyrir spágögnin líka.
Kortasjáin nýtir nýjustu útgáfur af ölduspám í hæstu upplausn sem hefur stækkað spásvæðin nær landi og bætt ölduspár nálægt ölduduflunum.
Framsetning gagna hefur jafnframt verið bætt með því að sameina myndræna framsetningu (gröf) og töflur, þannig að notendur geta bæði fengið skýra yfirsýn og skoðað nákvæmar tölulegar upplýsingar eftir þörfum. Þetta þjónar bæði almennum notendum og sérfræðingum betur en áður.
Framsetning sveiflutíma hefur verið uppfærð þannig að nú er sýndur sveiflutími orkutopps (Tp) í stað meðalsveiflutíma (Tm) fyrir ölduspárnar. Sá mælikvarði gefur raunsærri mynd af þeim öldum sem hafa mest áhrif hverju sinni og er almennt talinn hafa meira gildi við mat á sjólagi, siglingum og áhrifum á mannvirki.