Bryndís Friðriksdóttir, svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðis Vegagerðarinnar, og Halldór Ingólfsson, hjá D. Ing-verk, skrifuðu undir verksamning í dag, fimmtudaginn 15. maí, vegna uppbyggingar nýrrar strætóreinar á Kringlumýrarbraut. Framkvæmdum á að ljúka í ágúst. Markmiðið er að strætisvagnar komist leiðar sinnar á þessum kafla, óháð annarri umferð.
Verkið felst í uppbyggingu á nýrri forgangsrein fyrir strætó á 400 metra kafla á Kringlumýrarbraut, milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar, vestan megin á götunni, með akstursstefnu í suður, uppbyggingu á nýrri akrein fyrir bíla, auk þess sem miðeyja verður minnkuð og endurgerð til að skapa pláss fyrir nýja akrein. Girðing á miðeyjunni verður fjarlægð og í staðinn sett upp vegrið. Allar akreinar á þessum kafla verða fræstar og malbikaðar upp á nýtt. Einnig þarf að taka niður og færa til ljósastaura.
Nýjar strætóstöðvar verða reistar sitt hvoru megin við Háaleitisbraut. Ráðgert er að strætóleið 4 taki breytingum og aki beina leið eftir Kringlumýrarbraut þegar forgangsreinin verður tilbúin. Ferðatími strætófarþega mun styttast um 4-5 mínútur án þess að hafa áhrif á ferðatíma annarra ökutækja.
Lagt er upp með að framkvæmdir standi yfir sumartímann áður en umferð eykst aftur eftir sumarfrí. Búast má við umferðartöfum meðan á framkvæmdum stendur. Loka þarf einni akrein í suðurátt stóran hluta af framkvæmdatímanum og á meðan verður aðeins ein akrein í suðurátt opin. Einnig þarf að loka einni akrein í norðurátt meðan unnið er við að minnka miðeyjuna. Vonast er til að vegfarendur sýni þessu skilning og þolinmæði. Áætluð umferð á Kringlumýrarbraut á þessu svæði er um 30.000 ökutæki/sólarhring samanlagt í norður- og suðurátt.
Vegagerðin, Betri samgöngur, Reykjavíkurborg og Strætó vinna saman að þessu verkefni, sem er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum.
Miðeyjan verður endurgerð til að skapa pláss fyrir nýja akrein.
Halldór og Bryndís við undirritun samningsins.
Kort af svæðinu. Kaflinn sem um ræðir er vestan megin á Kringlumýrarbraut, með akstursstefnu í suður.
Horft til suðurs á Kringlumýrarbraut.