5. október 2026
Ný og betri aðstaða í Fella­bæ

Góð mæting var á opið hús í þjónustustöð Vegagerðarinnar í Fellabæ fimmtudaginn 1. október. Tilefnið var að fagna umfangsmiklum endurbótum sem gerðar hafa verið á húsnæði þjónustustöðvarinnar.

Húsnæði Vegagerðarinnar í Fellabæ hefur fengið andlitslyftingu.

Húsnæði Vegagerðarinnar í Fellabæ hefur fengið andlitslyftingu.

Vegagerðin í Fellabæ á síðustu öld.

Vegagerðin í Fellabæ á síðustu öld.

Gestir voru ánægðir með nýtt og nútímalegt yfirbragð þjónustustöðvarinnar. Boðið var til vöfflukaffis á verkstæðinu þar sem búið var að dúka upp borð og reisa svið.

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar sagði frá framkvæmdunum og Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings, ávarpaði gesti. Þá sagði Ingibergur Ragnarsson hjá Úlfsstöðum, verktaka framkvæmdarinnar, frá því hvernig verkið hefði gengið en fundarstjóri var Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austursvæði.

Gréta Sigurjónsdóttir sá um tónlistaratriði og flutti nokkur lög fyrir gesti. Síðan fékk fólk að ganga um húsnæðið og yngri gestir fengu að skoða forláta veghefil Vegagerðarinnar.

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar. Mynd: Austurfrétt

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar. Mynd: Austurfrétt

Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austursvæði. Mynd: Austurfrétt.

Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Austursvæði. Mynd: Austurfrétt.

Ingibergur Ragnarsson, verktaki hjá Úlfsstöðum. Mynd: Austurfrétt

Ingibergur Ragnarsson, verktaki hjá Úlfsstöðum. Mynd: Austurfrétt

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Mynd: Austurfrétt

Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings. Mynd: Austurfrétt

Kominn tími á breytingar

Eldri hlutar þjónustustöðvarinnar að Smiðjuseli 1 í Fellabæ eru frá árunum 1971 og 1985 og var húsnæðið því komið til ára sinna. Meginmarkmið framkvæmdanna var að nútímavæða skrifstofuaðstöðu starfsfólks Vegagerðarinnar á Austurlandi, bæta vinnuumhverfi og skapa jafnframt betri aðstöðu fyrir starfsfólk sem þarf tímabundið að geta unnið frá Fellabæ.

Byggð var ný viðbygging sem tengir saman skrifstofur, verkstæði og áhaldahús. Nýtt anddyri og stigagangur voru gerð og gert ráð fyrir lyftu milli hæða til að bæta aðgengi. Á efri hæð er nú ný og endurbætt fundaraðstaða ásamt skrifstofu og næðisherbergi. Jafnframt var lögð áhersla á góða hljóðvist, loftræstingu og bætt aðgengi.

Framkvæmdirnar urðu umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir þegar í ljós kom að ástand þaks og útveggja var verra en talið hafði verið. Því var meðal annars ráðist í endurnýjun á ytra byrði hússins, þakbitum og klæðningu og hefur útlit þjónustustöðvarinnar tekið miklum breytingum.

Þjónustustöðin var áfram í rekstri meðan á framkvæmdum stóð og þurfti starfsfólk tímabundið að færa skrifstofur, kaffiaðstöðu og salernisaðstöðu í gáma á lóðinni. Framkvæmdirnar gengu vel, veður var hagstætt og engin slys urðu á fólki á verktímanum.

Endurbæturnar eru liður í uppbyggingu Vegagerðarinnar á Austurlandi og er þjónustustöðin nú betur í stakk búin til að þjóna starfsemi stofnunarinnar og starfsfólki á svæðinu.

Að framkvæmdinni komu:

  • Hönnun: Jóhannes Þórðarson hjá Glámu Kím.
  • Burðarþol og lagnir: Þráinn og Benedikt.
  • Raflagnir: Tækniþjónustan SF.
  • Verktaki: Úlfsstaðir ehf.
  • Byggingarstjóri: Ingibergur Eiríkur Ragnarsson.
  • Eftirlit: Jón Grétar Traustason hjá Eflu á Egilsstöðum.
Yfir sjötíu manns mættu á opið hús hjá Vegagerðinni í Fellabæ. Mynd: Austurfrétt

Yfir sjötíu manns mættu á opið hús hjá Vegagerðinni í Fellabæ. Mynd: Austurfrétt

Gréta Sigurjónsdóttir tónlistarkona og eigandi Bókakaffis á Hlöðum tók nokkur lög fyrir gesti.

Gréta Sigurjónsdóttir tónlistarkona og eigandi Bókakaffis á Hlöðum tók nokkur lög fyrir gesti.

Fimleikafélag Hattar bauð gestum upp á dýrindis popp.

Fimleikafélag Hattar bauð gestum upp á dýrindis popp.

Hér má sjá fjóra yfirverkstjóra í Fellabæ. Guðni Nikulásson er lengst til hægri, þá kemur Magnús Jóhannsson, Jens Hilmarsson og loks núverandi yfirverkstjóri Ársæll Örn Heiðberg. Mynd: Austurfrétt

Hér má sjá fjóra yfirverkstjóra í Fellabæ. Guðni Nikulásson er lengst til hægri, þá kemur Magnús Jóhannsson, Jens Hilmarsson og loks núverandi yfirverkstjóri Ársæll Örn Heiðberg. Mynd: Austurfrétt

Börnin fengu að skoða veghefilinn.

Börnin fengu að skoða veghefilinn.

Starfsfólk þurfti að flytja vinnuaðstöðu í gáma meðan á framkvæmdum stóð.

Starfsfólk þurfti að flytja vinnuaðstöðu í gáma meðan á framkvæmdum stóð.

Byggð var ný viðbygging sem tengir saman skrifstofur, verkstæði og áhaldahús.  Mynd: Austurfrétt

Byggð var ný viðbygging sem tengir saman skrifstofur, verkstæði og áhaldahús. Mynd: Austurfrétt