Framkvæmdir við endurnýjun lýsingar í Hvalfjarðargöngum hófust fyrir rúmri viku. Verkið hefur gengið vel hjá verktakanum og kveikt hefur verið á hluta nýju lýsingarinnar við suðurenda ganganna. Vegfarendum er bent á breyttan hámarkshraða við Hvalfjarðargöng meðan framkvæmdir standa yfir.

Fagmenn ehf. við vinnu í Hvalfjarðargöngum.
Rafmenn ehf. eru verktakar framkvæmdarinnar. Þeir eru að vinna sig í gegnum göngin að sunnan en nú þegar er búið að taka niður 450-500 lampa og setja upp 56 nýja auk vinnulýsingar sem kemur tímabundið í stað þeirra lampa sem búið er að taka niður. Búið er að taka niður 3.400 m af strengjum og draga í 2.800 m af nýjum strengjum. Þá er búið að setja upp 130 ný „driver“-box. Vegfarendur geta nú þegar séð hvernig breytingin kemur til með að líta út þar sem búið er að kveikja á hluta daglýsingar í suðurenda ganganna.
Breyttur hámarkshraði við Hvalfjarðargöng
Í morgun tók gildi breyttur hámarkshraði við Hvalfjarðargöng að sunnanverðu. Hámarkshraði hefur verið lækkaður úr 70 km/klst. í 50 km/klst. á um 500 metra kafla, frá gangamunna að fyrsta útskoti að sunnanverðu. Breytingin gildir í báðar akstursáttir. Ástæða þessarar breytingar er skert lýsing í gangamunnanum vegna framkvæmdanna.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða nýjar hraðatakmarkanir.

Hluti nýju ljósanna við suðurenda Hvalfjarðarganga hefur verið tekinn í gagnið,