Breytingar verða á umferð á Breiðholtsbraut, milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs, á föstudaginn þegar ný brú yfir Breiðholtsbraut verður tekin í notkun.
Loka þarf Breiðholtsbraut, milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs, frá kl. 23:00 annað kvöld til kl. 06:00 að morgni föstudagsins á meðan unnið er að undirbúningi fyrir færslu umferðar. Opnað verður fyrir bílaumferð um nýja brú yfir Breiðholtsbraut og ný umferðarljós við gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar tekin í notkun. Jafnframt verður umferð hleypt á Arnarnesveg milli Breiðholtsbrautar og Vatnsendavegar, auk þess sem nýr hluti Vatnsendavegar milli Arnarnesvegar og Vatnsendahvarfs verður opnaður.

Hér sést hvar nýja leiðin verður.
Samhliða þessum breytingum verður gatnamótum Vatnsendahvarfs og Breiðholtsbrautar lokað, umferðarljósin þar fjarlægð og skipulagi gatnamótanna verður breytt. Áætlað er að þau verði opnuð í breyttri mynd síðla hausts. Ökumönnum er bent á að aka til og frá Vatnsendahvarfi í gegnum Vatnsendaveg, nýtt hringtorg við Arnarnesveg og ný gatnamót á Breiðholtsbraut.
Um er að ræða stóran áfanga sem tengist framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát, fylgja nýrri merkingu og virða leiðbeiningar á svæðinu á meðan breytingarnar taka gildi.

Umferð bíla verður færð á brú yfir Breiðholtsbraut.

Hér sést yfir nýja brú og hringtorg.

Nýtt hringtorg á Vatnsendavegi.

Nýtt hringtorg á Arnarnesvegi.