4. september 2026
Ný áskriftar­kort og breyt­ingar á akst­ursleið­um

Vegagerðin vekur athygli á breytingum á vöruframboði áskriftarkorta og breytingum á fimm af 26 akstursleiðum landsbyggðarvagna sem starfræktar eru í leiðarkerfi landsbyggðarstrætó um land allt.

Landsbyggðastrætó á ferð undir Eyjafjöllum.

Landsbyggðastrætó á ferð undir Eyjafjöllum.

Breytingar á akstursleiðum eru hluti af frekari aðgerðum sem Vegagerðin þarf að framkvæma til að rekstur almenningssamgangna á landsbyggðinni sé innan fjárlaga. Breytingarnar hafa þegar tekið gildi eða eru í þann mund að taka gildi. Fyrir leiðir 72 og 73 vann Vegagerðin að útfærslu breytinganna í samráði við sveitarfélög í uppsveitum og Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi (SASS). Var lagt upp með að tryggja áfram þjónustu við nemendur FSU og Menntaskólans á Laugarvatni (ML). Gildistaka breytinga á leiðum 72 og 73 er frá og með 1. október nk. Fram að því er þjónusta óbreytt á leiðunum.

Breytingarnar á leiðum 72 og 73 verða eftirfarandi:

  1. Báðar akstursleiðir, leið 72 og 73, verða áfram í akstri og aka hefðbundna akstursleið.
  2. Öllum akstri yfir sumartímann á leiðum 72 og 73 verður hætt. – Akstur yfir vetrartímann verður í takt við skóladagatal Fjölbrautaskólans á Suðurlandi (FSU) og Menntaskólans á Laugarvatni (ML).
  3. Akstri á laugardögum á leið 73 verður hætt.
  4. Ferðaframboð á leið 73 á föstudögum, sem eru þrjár ferðir í dag, minnkar í tvær ferðir.

Vegagerðin mun setja í leiðarvísi á heimasíðu Strætó bs. nýjar tímatöflur leiða 72 og 73 þegar þær liggja fyrir. Áætlað er að það verði á næstu dögum.

Aðrar akstursleiðir þar sem dregið hefur verið úr þjónustumagni eru leið 50 sem ekur Borgarnes-Akranes-Reykjavík, leið 61 sem ekur Ísafjörður-Hólmavík, leið 51 sem ekur Selfoss-Hveragerði-Reykjavík, og leið 71 sem ekur Þorlákshöfn-Hveragerði.

Byggðakort – ný áskriftarkort

Ný áskriftarkort fyrir landsbyggðarstrætó, Byggðakort, og nemakort með nýju og sveigjanlegra fyrirkomulagi eru komin í sölu. Hægt er að versla kortin í vefverslun Strætó.

Byggðakortin eru ný áskriftarkort fyrir landsbyggðastrætó. Þau gilda á ákveðnum akstursleiðum milli þéttbýliskjarna innan hvers landshluta, án viðkomu á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða hagkvæmari valkost fyrir þau sem ferðast reglulega á þessum leiðum. Þær akstursleiðir sem urðu fyrir valinu fyrir Byggðakortin eru þær sem mest ákall hefur verið um, en komi upp óskir um fleiri akstursleiðir mun Vegagerðin taka það til skoðunar. Á Suðurlandi eru þrjár gerðir byggðakorta í boði:

  • Selfoss – Hveragerði
  • Selfoss – Þorlákshöfn
  • Selfoss – Hella – Hvolsvöllur

Þá eru byggðakort fyrir notendur í uppsveitum Suðurlands einnig væntanleg.

Sömu aldursflokkar og afsláttarkjör gilda fyrir Byggðakort og Landshlutakort. Landshlutakortin, sem hafa verið í boði frá árinu 2022, verða áfram í sölu á óbreyttu verði og með óbreyttum skilmálum.

Nemakort – nýtt fyrirkomulag

Nemakort með nýju og sveigjanlegra fyrirkomulagi er einnig komið í sölu. Nemendur geta nú valið þau kort sem henta þeim best, annaðhvort Landshlutakort eða Byggðakort, og fá 50% afslátt af þeim kortum. Þá er einnig hægt að velja á milli 1 mánaðar, 3 mánaða og 12 mánaða korta. Áður var aðeins hægt að kaupa kort fyrir ákveðinn landshluta sem gilti í 6 mánuði frá kaupum. Nýja fyrirkomulagið veitir því nemendum meiri sveigjanleika og gerir þeim kleift að velja áskrift út frá þeim leiðum sem þeir nota mest.