Ný áskriftarkort fyrir landsbyggðarstrætó, Byggðakort, og nemakort með nýju og sveigjanlegra fyrirkomulagi eru komin í sölu. Kortin fást á vef Strætó.

Ný kort fyrir landsbyggðastrætó eru komin í sölu.
Byggðakortin eru ný áskriftarkort fyrir landsbyggðastrætó. Þau gilda á ákveðnum akstursleiðum milli þéttbýliskjarna innan hvers landshluta, án viðkomu á höfuðborgarsvæðinu. Um er að ræða hagkvæmari valkost fyrir þau sem ferðast reglulega á þessum leiðum. Þær akstursleiðir sem urðu fyrir valinu fyrir Byggðakortin eru þær sem mest ákall hefur verið um, en komi upp óskir um fleiri akstursleiðir mun Vegagerðin taka það til skoðunar.
Eftirfarandi akstursleiðir eru í boði fyrir Byggðakortin:
Selfoss – Hveragerði
Selfoss – Þorlákshöfn
Selfoss – Hella – Hvolsvöllur
Reykjanesbær – Sandgerði – Garður
Reykjanesbær – Vogar
Borgarnes – Akranes
Borgarnes – Dalir
Sömu aldursflokkar og afsláttarkjör gilda fyrir Byggðakort og Landshlutakort. Landshlutakortin, sem hafa verið í boði frá árinu 2022, verða áfram í sölu á óbreyttu verði og með óbreyttum skilmálum.
Nemakort með nýju og sveigjanlegra fyrirkomulagi er einnig komið í sölu. Nemendur geta nú valið þau kort sem henta þeim best, annaðhvort Landshlutakort eða Byggðakort, og fá 50% afslátt af þeim kortum.
Áður var aðeins hægt að kaupa kort fyrir ákveðinn landshluta sem gilti í 6 mánuði frá kaupum. Nýja fyrirkomulagið veitir því nemendum meiri sveigjanleika og gerir þeim kleift að velja áskrift út frá þeim leiðum sem þeir nota mest.
Nánari upplýsingar um öll áskriftarkort landsbyggðarstrætó má finna á heimasíðu Strætó bs. https://www.straeto.is/verslun/landsbyggdin

Landsbyggðastrætó á ferð undir Eyjafjöllum.