Unnið er að endurnýjun neyðarsímaskápa í Héðinsfjarðargöngum, í kaflanum milli Siglufjarðar (76-14) og Héðinsfjarðar (76-15). Á meðan sú vinna stendur yfir verða einhverjir neyðarsímar tímabundið óvirkir og án sambands. Ef óhapp eða neyð kemur upp í göngunum skal hringja í Neyðarlínuna, 112.

Brátt verða komnir nýir neyðarsímaskápar í Héðinsfjarðargöng.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdin standi yfir í tvær til þrjár vikur, eða frá 9. nóvember til 29. nóvember. Verktaki vinnur í göngunum á dagvinnutíma, eða frá klukkan 08:00 – 19:00 alla virka daga.
Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát, virða merkingar á vinnusvæðinu og fylgja fyrirmælum starfsmanna.