Umferðin á Hringvegi í mars mánuði dróst saman um heil 10,6 prósent frá sama mánuði fyrir ári. Þetta er mjög mikill samdráttur og hefur ekki orðið jafn mikill í venjubundnu árferði. Hugsanlega spilar veðrið í mars inn í eða aðrar breytur einsog minnkandi umsvif, breytingar á bensín verði og km-gjald.
Milli mánaða 2024 og 2025
Mikill samdráttur var í umferðinni yfir 16 lykilteljara á Hringvegi, í liðnum mánuði, sé hún borin saman við sama mánuð á síðasta ári, en samdrátturinn mældist 10,6%, sem hefur ekki áður gerst í venjubundnu árferði, frá því að þessar mælingar hófust árið 2005. Leita þarf aftur til Covid-ársins 2020 og bankahrunsáranna til að finna meiri samrátt milli mars mánaða. Það má hafa í huga hvort veðrið í nýliðnum mars hafi verið óvenju slæmt og það skýri þennan mun, að fullu, eða er þessi mikli samdráttur sambland fleiri atriða eins og hækkandi olíuverðs (vegna stríðsátaka í Íran) samhliða nýálögðu km-gjaldi, hækkandi vöxtum og minni hagvexti. En Vegagerðin hefur margoft bent á tengsl milli hagvaxtar og umferðar.
Umferð dróst mikið saman á öllum landssvæðum, en mest um teljara sem eru á höfuðborgarsvæði og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða 10,9%. Minnst dróst umferð saman yfir teljara á Suðurlandi eða um 8,6%.
Af einstaka mælistöðum dróst umferðin mest saman yfir teljara á Mývatnsöræfum eða um 27,6%, en ekki þar langt á eftir kom teljarasnið á Geithálsi með 25,6% samdrátt. Þá má geta þess að umferð um Geithálssniðið er um 35 sinnum meiri en um Mývatnsöræfi.

Samanburðartafla-mars
Núna hefur umferð dregist saman um 1,4%, það sem af er ári, miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta er jafnframt mesti samdráttur í umferð miðað við árstíma frá Covid-árinu 2020. Þróunin bendir því til þess að umferð hafi almennt verið minni á vegakerfinu en undanfarin ár, þó munur sé á milli landshluta.
Þó hefur umferðin aðeins dregist saman á tveimur svæðum landsins, annars vegar á og við höfuðborgarsvæðið (-4,4%) og hins vegar á Austurlandi (-1,7%). Samdrátturinn frá áramótum er því að mestu leyti drifinn áfram af minni umferð á og við höfuðborgarsvæðið, þar sem breytingarnar hafa verið mestar. Á öðrum svæðum landsins hefur umferð annað hvort staðið í stað eða aukist lítillega miðað við sama tímabil í fyrra.
Ef horft er til umferðar eftir vikudögum það sem af er ári sést að umferðin er mest á föstudögum, sem samræmist því að margir ferðast þá bæði vegna atvinnu og helgarferða. Minnst er umferðin hins vegar á laugardögum.
Umferð hefur dregist saman á flestum vikudögum miðað við síðasta ár, að undanskildum miðvikudögum og sunnudögum þar sem mælist aukning. Mestur samdráttur sést á fimmtudögum, sem gefur vísbendingar um breytt ferðamynstur yfir vikuna. Á móti kemur að umferð á miðvikudögum hefur aukist um 3,9%, sem er mesta aukning sem mælist á einstökum vikudegi á tímabilinu. Þetta bendir til þess að dreifing umferðar yfir vikuna hafi tekið einhverjum breytingum miðað við fyrri ár.
Hlekkur inn á talnaefni: https://www.vegagerdin.is/vegagerdin/gagnasafn/umferdartolur/tolfraedi-umferdar/16-lykilteljarar-a-hringvegi-2025
Fyrirvari:
Að gefnu tilefni þykir rétt að minna á að almennt gildir að allar umferðartölur eru grófrýndar en í þeim gætu leynst villur, vegna bilana í búnaði, sem erfitt getur reynst að sjá fyrr en jafnvel að ári liðnu.

Hringvegur-samanlagt-mars

Hringvegur-hlutfall-mars

Hringvegur-vikudagar-mars

Hringvegur-mánuðir-mars

Hringvegur-vísitala-mars