24. mars 2026
Mikil umferð á umfer­din.is

Fjölmargir fylgdust með færð og veðri á upplýsingavefnum umferdin.is í gær þegar óveður gekk yfir landið. Samkvæmt mælingum sóttu um 84 þúsund einstaklingar vefinn heim á þessum eina degi, sem er metfjöldi það sem af er ári.

Heildarfjöldi heimsókna á umferdin.is nam um 171 þúsund og síðuflettingar fóru yfir eina milljón. Fjöldi heimsókna segir til um hversu oft vefurinn er opnaður, óháð því hvort um nýjan eða endurtekinn gest er að ræða.

Notendur dvöldu að meðaltali í rúmar níu mínútur á síðunni, sem bendir til þess að mjög margir hafi fylgst grannt með færð, veðri og aðstæðum á vegum landsins á meðan óveðrið stóð yfir.

Á þessu ári hafa samtals 1,6 milljónir gesta farið inn á umferdin.is og er búið að skoða 12,2 milljónir síðna.