3. nóvember 2023
Metumferð á höfuð­borgar­svæð­inu í októ­ber

Umferð um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 2,8 prósent í október miðað við sama mánuð árið áður. Þrátt fyrir að aukningin sé heldur minni en mældist á Hringveginum í sama mánuði var engu að síður um metumferð að ræða á þessum mælisniðum.

Umferð hefur almennt verið vaxandi á svæðinu á árinu og bendir þróunin til þess að heildarumferð aukist um 4,5 prósent þegar árið er gert upp. Sú aukning endurspeglar áframhaldandi fjölgun ökutækja og aukna umferð á höfuðborgarsvæðinu, sem hefur áhrif á álag á vegakerfið og mikilvægi þess að fylgjast náið með þróun umferðar.

Milli mánaða
Öllu hógværari aukning varð í umferð yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í október en á Hringvegi í sama mánuði en umferðin jókst um 2,8% miðað við sama mánuð á síðasta ári.  Um er að ræða nýtt met í októberumferð á höfuðborgarsvæðinu en aldrei áður hafa farið jafn mörg ökutæki um mælisniðin þrjú í október mánuði.

Mest jókst umferðin um mælisnið ofan við Ártúnsbrekku eða um 3,2% en minnst jókst umferðin um Hafnarfjarðarveg við Kópavogslæk eða um 1,8%.

Í nýliðnum október var mest ekið yfir mælisnið á Reykjanesbraut eða tæplega 70 þúsund ökutæki á sólarhring  en minnst yfir mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða rétt rúmlega 48 þúsund ökutæki á sólarhring

Frá áramótum
Núna hefur umferðin aukist um 4,5% frá áramótum borið saman við sama tímabil á síðasta ári.

Umferð eftir vikudögum
Mest var ekið á föstudögum, í síðasta mánuði, en minnst á sunnudögum.

Umferð jókst hins vegar hlutfallslega mest á sunnudögum milli ára eða um 6,7% en 1,4% samdráttur varð í umferð á fimmtudögum sé miðað við sama mánuð á síðasta ári.

Horfur út árið 2023
Hegði umferðin sér líkt og í meðalári það sem eftir lifir árs má búist við að hún aukist um 4,5% miðað við síðasta ár. Verði það niðurstaðan hefur aldrei áður mælst meiri umferð í þessum þremur lykilmælisniðum.


Tölfræði

Umferðin hlutfallsleg aukning

Umferðin hlutfallsleg aukning

Umferðin eftir mánuðum

Umferðin eftir mánuðum