Metsöluhöfundur á ráðstefnu Vegagerðarinnar
Dan Gardner, annar höfunda metsölubókarinnar How Big Things Get Done, verður aðalfyrirlesari á ráðstefnu Vegagerðarinnar sem fer fram 15. apríl 2026. Ráðstefnan ber yfirskriftina: Horfum fram á veginn – verkefnastjórnun stórframkvæmda og viðhalds.

Dan Gardner er metsöluhöfundur og skrifaði meðal annars hina áhrifaríku bók How Big Things Get Done.
Í erindi sínu, Getting Big Things Done On Budget And On Time, fjallar Gardner um það sem skiptir hvað mestu máli í stórum verkefnum; hvernig hægt er að skila þeim á réttum tíma og innan fjárhagsramma.
Gardner er kanadískur metsöluhöfundur á lista New York Times og verðlaunablaðamaður. Bækur hans, þar á meðal Superforecasting og How Big Things Get Done (skrifuð með Bent Flyvbjerg prófessor við Oxford-háskóla), hafa mótað alþjóðlega umræðu um hvernig megi bæta ákvarðanatöku og stýringu flókinna verkefna. Verk hans hafa verið gefin út í tugum landa og þýdd á yfir tuttugu tungumál.
Hann hefur haldið fyrirlestra og veitt ráðgjöf víða um heim fyrir fjölmargar stofnanir og fyrirtæki á borð við Google, Goldman Sachs, Siemens, Zurich Insurance, Khosla Ventures, auk ýmissa vogunarsjóða og ríkisstjórna.
Ráðstefnan er ætluð öllum áhugasömum um uppbyggingu samgönguinnviða. Hún verður haldin í salnum Háteigi á 4. hæð á Grand Hótel Reykjavík, 15. apríl 2026.
Nánari dagskrá auglýst síðar.
Skráning stendur yfir: Skráningarhlekkur