Víða gæti komið til vegalokana þegar líður á daginn og kvöldið vegna veðursins sem gengur yfir landið á næsta sólarhring. Margir vegir eru á óvissustigi og gæti komið til þess að þeim yrði lokað með stuttum fyrirvarar. Sjá allar upplýsingar á umferðin.is þar sem alltaf eru nýjustu upplýsingar um óvissu og lokanir vega.
Veður er byrjað að versna á norðanverðu landinu og á Vestfjörðum, það mun teygja sig inn á vestanvert landið og fara síðan austur fyrir þegar líður á daginn. Á suðvesturhorninu er útlit fyrir að veðrið verði verst eftir klukkan átta og fram yfir miðnætti. Á sunnanverðu landinu má síðan búast við slæmu veðri og miklu vindi frá því í fyrramálið og fram eftir degi og þar gæti einnig komið til lokana.
Holtavörðuheiðin og fleiri vegir á vestanverðu landinu verða á óvissustigi frá kl. 14 í dag. Á Vestfjörðum verða vegir á óvissustigi frá kl. 14 á sunnanverðum Vestfjörðum en frá kl. 20 annarsstaðar. Á Norðvesturlandi verða vegir einnig á óvissustigi frá kl. 14 í dag. Öxnadalsheiði og Tröllaskagi hafa verið á óvissustigi frá kl. 13 en þegar austur dregur er reiknað með óvissustigi frá kl. 18 á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.
Búast má við að Mosfellsheiði geti lokast þegar þjónustu lýkur í dag kl. 20. Sólarhringsþjónusta er á Hellisheiði og hefur verið aukið í viðbragð á heiðinni fyrir kvöldið og nóttina til að freista þess að halda þeirri leið opinni.
Ljóst er að veður verður slæmt og ófærð töluverð, auk þess sem miklar líkur eru á lokunum. Því er fólk hvatt til að geyma ferðalög svo sem kostur er. Fylgjast vel með á umferðin.is eða hringja í upplýsingasíma Vegagerðarinnar 1777 áður en lagt er af stað.