30. janúar 2026
Losuðu stíflu í Bæjarósi

Losuðu stíflu í Bæjarósi

Þegar sunnlægar áttir eru ríkjandi yfir vetrarmánuðina og lítið streymi er úr Lónsfirði við Bæjarós, hleðst sjór fyrir í lóninu með þeim afleiðingum að ósinn stíflast af sandi. Við slíkar aðstæður hækkar yfirborð sjávar í firðinum og flæða fer að veginum nærri bænum Hvalnesi.

 

Að sögn Rúnars Sigurðssonar, yfirverkstjóra á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Höfn, gerist þetta að jafnaði um það bil einu sinni á ári. „Núna hefur þetta hins vegar gerst tvisvar á tveimur mánuðum,“ segir hann.

Starfsmenn Vegagerðarinnar fylgjast grannt með aðstæðum við ósinn og þekkja vel merkin þegar hann stíflast. „Við sjáum það oftast strax, því þá er ákveðinn klettur sem breytist í eyju. Þá vitum við að við þurfum að kalla út verktaka til að losa stífluna,“ útskýrir Rúnar.

Stíflan var síðast losuð á Þorláksmessu, en Bæjarós hélst aðeins opinn fram að bóndadegi. Þá tók aftur að flæða að veginum og var verktaki kallaður út að nýju. Verkefnið felst í því að aka gröfu frá Hvalnesi meðfram fjörunni, um 14 kílómetra leið, að ósnum vestan megin við lónið. Þar er grafinn skurður til að hleypa vatninu út, en slíkt þarf að gera á háflóði til að tryggja sem best streymi.

Rúnar segir verktakann reyndar hafa nokkuð gaman af verkefninu. „Þetta er eins og stór sandkassi,“ segir hann brosandi, en áréttar jafnframt að starfsmaður frá Vegagerðinni sé alltaf á staðnum enda ekki óhætt að vera einn á ferð við þessar aðstæður.

Engar skemmdir hafa orðið á veginum vegna sjógangs að sögn Rúnars. „Við leggjum áherslu á að grípa til aðgerða áður en vatnið hækkar of mikið. Aðal hættan skapast ef þetta gerist í frosti og hvassviðri. Þá getur ísinn skemmt vegrið og jafnframt er hætta á að klaki eða krapi berist inn á veginn.“

Myndirnar sem fylgja fréttinni eru teknar af Þorleifi Olsen, starfsmanni á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Höfn.

Kort sem sýnir Lónsfjörð. Vestan megin við fjörðinn er Bæjarós og austan megin Hvalnes. Grafan þarf að aka frá Hvalnesi eftir fjörunni 14 km leið að Bæjarós.

Kort sem sýnir Lónsfjörð. Vestan megin við fjörðinn er Bæjarós og austan megin Hvalnes. Grafan þarf að aka frá Hvalnesi eftir fjörunni 14 km leið að Bæjarós.

Þegar Bæjarós stíflast hækkar í Lónsfirði og sjór flæðir upp að Hringvegi við Hvalnes.

Þegar Bæjarós stíflast hækkar í Lónsfirði og sjór flæðir upp að Hringvegi við Hvalnes.

Verktakinn grefur rennu til að vatn flæði út úr Lónsfirði.

Verktakinn grefur rennu til að vatn flæði út úr Lónsfirði.

Þegar ákveðinn klettur hefur breyst í eyju vita starfsmenn Vegagerðarinnar að Bæjarósinn hefur stíflast.

Þegar ákveðinn klettur hefur breyst í eyju vita starfsmenn Vegagerðarinnar að Bæjarósinn hefur stíflast.