Aðgangstakmarkanir verða á Þingvallavegi frá klukkan 15:00 til miðnættis þann 20. júní vegna tónleika á Þingvöllum.

Lokanir verða á Þingvallavegi við Grafningsafleggjara vestan við Þingvallavatn, við Uxarhryggjarveg við norðurenda vatnsins og við Miðfell austan við Þingvallavatn. Við þetta bætast einnig innri lokanir á svæðinu sem eru skýrðar betur á korti sem fylgir fréttinni. Vegurinn verður lokaður öllum nema þeim sem eiga miða á tónleikana.
Þessar takmarkanir munu án efa hafa áhrif á umferð, sér í lagi um Mosfellsheiði.
Tónleikarnir á Þingvöllum kallast Bergmál og fara fram á sumarsólstöðum. Tónleikarnir eru haldnir af hljómsveitinni Kaleo en fjöldi annarra tónlistarmanna kemur fram. Tónleikadagskráin hefst klukkan 11:00 og stendur til miðnættis.
Hægt er að panta bílastæði á ákveðnum svæðum á Þingvöllum og boðið upp á skutlþjónustu að tónleikastað. Þeir sem ætla að nýta sér bílastæði þurfa að koma fyrir klukkan 16:00. Einnig er hægt að kaupa miða í rútu sem fer frá Reykjavík á tónleikastað.
