13. október 2026
Lokan­ir á Rjúpna­vegi og Arnar­nesvegi á fimmtu­dag

Lokanir verða á Arnarnesvegi og Rjúpnavegi fimmtudaginn 15. október vegna malbikunar. Lokuninni verður skipt í 2 áfanga.
Fyrri áfanginn er lokun á bæði Rjúpnavegi og Arnarnesvegi og mun sú lokun vara á milli klukkan 9:00-12:00. Hjáleið er um Reykjanesbraut og Breiðholtsbraut.
Seinni áfanginn er á milli klukkan 12:00 – 16:00 og þá mun Rjúpnavegurinn vera lokaður á milli Hvarfatorgs og að Kóravegi/Ásakórs. Hjáleið er um Arnarnesveg og Vatnsendaveg.
Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.
Lokunarplan.

Lokunarplan.

Lokunarplan.

Lokunarplan.