Ekkert ferðaveður verður á landinu snemma í fyrramálið, fimmtudag og fram yfir hádegi. Fjölmargir vegir verða lokaðir og óvíst er með Reykjanesbraut.

Fjölmargir vegir verða lokaðir í fyrramálið.
Búast má við töluverðum truflunum í samgöngum á öllu landinu í fyrramálið enda spáð vonskuveðri. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendinu í morgunsárið en gular viðvaranir verða í öðrum landshlutum.
Af þessum sökum hefur Vegagerðin ákveðið að loka ákveðnum vegum eða setja þá á óvissustig. Það þýðir að vegir geta lokast með litlum fyrirvara.
Hér að neðan er listi yfir þá vegi sem eru á óvissustigi eða verða lokaðir. Tímasetningar eru til viðmiðunar en staðan er endurmetin reglulega. Nauðsynlegt er að fylgjast með á umferdin.is til að fá nýjustu upplýsingar um lokanir vega. Einnig er hægt að hafa samband við umferðarsíma Vegagerðarinnar í 1777.