Viðhaldsvinna á Óseyrarbrú á Eyrarbakkavegi (34) hefst þriðjudaginn 29. september. Á meðan á framkvæmdum stendur verður aðeins ein akrein opin um brúna og umferð stýrt með umferðarljósum. Búast má við smávægilegum töfum.

Óseyrarbrú. Mynd: Anton Brink
Verktakar á vegum Vegagerðarinnar munu vinna að viðhaldi brúarinnar yfir Ölfusárós næstu vikurnar. Vinnusvæði verður afmarkað á annarri af tveimur akreinum brúarinnar og því verður aðeins ein akrein opin fyrir umferð framhjá vinnusvæðinu.
Umferð verður stýrt með umferðarljósum og hámarkshraði við vinnusvæðið lækkaður í 30 km/klst.
Framkvæmdir hefjast þriðjudaginn 29. september og er áætlað að þær standi yfir í um fjórar vikur, eða til loka október, ef veður leyfir.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát, virða merkingar og hraðatakmarkanir og gæta fyllsta öryggis við vinnusvæðið. Búast má við smávægilegum töfum á meðan á framkvæmdum stendur.
Vegagerðin þakkar vegfarendum fyrir þolinmæði og tillitssemi.