Lítils háttar aukning á umferð á höfuðborgarsvæðinu
Umferðin í ágúst á höfuðborgarsvæðinu jókst einungis um hálft prósent frá sama mánuði fyrir ári síðan. Sögulega séð er þetta lítil aukning í ágúst. Útlit er fyrir að umferðin á höfuðborgarsvæðinu um lykilmælisnið Vegagerðarinnar aukist um 2,5 prósent sem er áþekkt meðaltalsaukningu á ári. Ljóst er að hvorttveggja á Hringvegi og á höfuðborgarsvæðinu dregur úr hraða umferðaraukningar.
Milli mánaða 2024 og 2025
Umferðin um stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins reyndist aðeins 0,5% meiri, í nýliðnum ágúst, borið saman við sama mánuð á síðasta ári, ef marka má þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.
Umferð jókst lítillega í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi (0,1%), dróst saman á Reykjanesbraut (-0,5%) en jókst á Vesturlandsvegi (1,8%).
Meðalaukning umferðar, í umræddum mælisniðum, í ágúst mánuði, frá árinu 2005, er um 2,4% þ.a.l. telst núverandi aukning frekar lítil.
Frá áramótum
Nú hefur umferð aukist um 1,9%, frá áramótum, en á síðasta ári hafði umferðin aukist um 3,5% á sama tíma, miðað við árið 2023.
Umferð eftir vikudögum
Í nýliðnum mánuði var mest ekið á fimmtudögum en minnst á sunnudögum. Hlutfallslega jókst umferð mest á sunnudögum (4,9%) en dróst saman um 1,2% á föstudögum, sem jafnframt var eini vikudagurinn þar sem umferð dróst saman.
Horfur út árið 2025
Núna stefnir í hóflega aukningu á umferð á höfuðborgarsvæðinu, ef marka má þessi þrjú lykil mælisnið, eða um 2,5% og yrði það á pari við meðaltalsaukningu þessara sniða frá árinu 2005, ef það gengur eftir.
Ath. Öll talningagögn eru grófrýnd og gætu tekið breytingum við endanlega yfirferð.
Hb-vísitala-ágúst
Hb-hlutfall-ágúst
Hb-mánuðir-ágúst
Hb-samanlagt-ágúst
Hb-vikudagar-ágúst