Óvenju lágum þrýstingi (allt niður í 934 hPa) er spáð yfir landinu í dag. Einnig er allvíða von á mikilli ölduhæð nærri ströndinni. Líkur eru á hárri sjávarstöðu og jafnvel sjávarflóðum við suður-, austur- og norðurströndina. Upplýsingar um m.a. ölduspá á grunnslóð og sjávarfallaspá í höfnum er að finna á Sjólag.is.
Spáð er mjög hárri og þungri sunnanöldu, um 8 m, rétt utan Víkur. Ölduhæð mun ná hámarki á sama tíma og kvöldflóðið, eða milli kl. 19 og 21 í kvöld. Við svipaðar aðstæður í desember í fyrra flæddi yfir Hringveginn svo það gæti endurtekið sig í kvöld.
Hringveginum verður að öllum líkindum lokað á meðan þetta ástand varir. Til að tryggja neyðarakstur verður varaleið opnuð, sem er meðfram hlíðinni hjá golfvellinum.
Vegagerðin hefur þegar sótt um framkvæmdaleyfi fyrir flóðvarnagarða við Vík, sem eiga að verja Hringveginn. Undirbúningur fyrir flóðvarnagarðana er langt kominn og verður verkefnið boðið út þegar framkvæmdaleyfi er í höfn.
Búast má við ágangi sjávar á háflóði eftir miðnætti í kvöld en um svipað leyti nær ölduhæðin hámarki. Þá getur sjór gengið yfir Strandveginn og möl og grjót kastast upp á veg.
Spáð er mjög hárri og þungri öldu, yfir 10 m, með þannig stefnu að hún gæti borist inn að höfnum, t.d. á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði, en þó er það óvíst.
Spáð er hárri og þungri öldu og norðanátt, sem nær hámarki á flóðinu á miðnætti til kl. 03/06 fimmtudagsmorgun. Áhlaðandi verður mikill borið saman við sjávarfallasveifluna á þessu svæði. Áhrifanna mun gæta í höfnum á Húsavík og Sauðárkróki.