26. nóvember 2026
Líkur á sjávar­flóð­um í kvöld og fyrra­málið

Spáð er hárri sjávarstöðu við suðurströndina í kvöld og snemma í fyrramálið og eru líkur á sjávarflóðum bæði á kvöld- og morgunflóðinu. Mikilvægt er að fylgjast vel með ölduspám á grunnslóð og sjávarfallaspá á Sjólag.is. 

Ölduspáin klukkan 6 í fyrramálið.

Ölduspáin klukkan 6 í fyrramálið.

Suðlæg alda sunnan af landinu er há, eða 8-10 m, og nokkuð þung með 15 sek. sveiflutíma. Að auki er stórstreymt og nokkur loftþrýstingsáhlaðandi.  

Loftþrýstingsáhlaðandi er hækkun á sjávarborði sem verður þegar loftþrýstingur fellur, til dæmis þegar djúpar og kröftugar veðurlægðir ganga yfir. 

Hámark ölduhæðarinnar er um miðnætti en þá er fjara. Kvöldflóðið verður milli klukkan 18 og 19 í kvöld og morgunflóðið milli klukkan 6 og 7 í fyrramálið.  

Í Vík í Mýrdal má búast við að sjór gangi á land á kvöldflóðinu frá um kl. 17:00, sem nær hámarki í byrjun morgunflóðsins frá kl. 5 á föstudagsmorgun. Umfangi gæti svipað til flóðanna 14. október síðastliðinn. Búið er að reisa flóðvörn fyrir iðnaðarsvæðið við Vík en hætta er á að sjór flæði að Hringveginum ef spár ganga eftir.  

Hætta á skriðuföllum og gular viðvaranir í kortunum  

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna vinds í mörgum landshlutum og rigningar á Suðausturlandi og Austfjörðum. Sjá veðurviðvaranir á vef Veðurstofunnar.  

Skriðuviðvörun er í gildi fyrir Austfirði og Suðausturland. Vegna mikillar rigningar má búast við miklum vatnavöxtum í ám og lækjum á svæðinu. Jafnframt eru auknar líkur á skriðuföllum, svo sem skriðum og grjóthruni þar sem mesta úrkoma verður, á meðan veðrið gengur yfir.  

Skriðuvakt Veðurstofunnar hvetur fólk sem þarf að vera á ferðinni að sýna aðgát á vegum, sérstaklega undir bröttum hlíðum og á þekktum grjóthrunssvæðum, og fylgjast vel með upplýsingum á Umferðin.is.

Eins og staðan er metin er ekki talin hætta í byggð á spásvæðum, en staðan verður endurmetin eftir því sem mælingar berast. 

Vindhviður við fjöll gætu náð staðbundið yfir 35 m/s sem er varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. 

Ný flóðvörn við Vík í Mýrdal.

Ný flóðvörn við Vík í Mýrdal.