10. febrúar 2026
Leið­bein­ingar um samgöngumat komnar út

Leiðbeiningar um samgöngumat komnar út

Vegagerðin hefur gefið út leiðbeiningar um samgöngumat sem miða að því að tryggja faglegt, gagnsætt og samræmt mat á áhrifum uppbyggingar á samgöngur. Sveitarfélög eða uppbyggingaraðilar vinna samgöngumat þegar uppbygging er talin geta haft umtalsverð áhrif á samgönguinnviði, svo sem vegna framkvæmda, skipulags eða breytinga á skipulagi.  

Samgöngumat nær til allra samgöngumáta og nær yfir öll stig uppbyggingar, eða allt frá fyrstu hugmyndum til framkvæmdar.

Samgöngumat nær til allra samgöngumáta og nær yfir öll stig uppbyggingar, eða allt frá fyrstu hugmyndum til framkvæmdar.

Samgöngumat veitir sveitarfélögum betri yfirsýn á áhrif uppbyggingar á samgöngur innan sveitarfélagsins. Jafnframt er matið mikilvægt fyrir Vegagerðina svo mögulegt sé að kortleggja áform sveitarfélaga með tilliti til áhrifa á umferð og samgönguinnviði og bregðast við með viðeigandi ráðstöfunum. Niðurstöður mats geta m.a. nýst til forgangsröðunar verkefna, gerð framkvæmdaáætlana og til að styðja við heildstæða þróun samgönguinnviða í tengslum við uppbyggingu.

Umfang matsins skal vera í samræmi við eðli og aðstæður hvers verkefnis fyrir sig. Matið skal unnið sem hluti af undirbúningi framkvæmda eða uppbyggingar og það getur farið fram á mismunandi stigum ferilsins. Þó er æskilegt að vinna það eins snemma í ferlinu og kostur er. 

Hvernig nýtast leiðbeiningarnar?

Leiðbeiningarnar nýtast  við að móta og forgangsraða aðgerðum sem stuðla að sjálfbærari og skilvirkari þróun samgangna. Í leiðbeiningunum eru m.a. sett viðmið um hvenær samgöngumat er nauðsynlegt.  

Samgöngumat nær til allra samgöngumáta og nær yfir öll stig uppbyggingar, eða allt frá fyrstu hugmyndum til framkvæmdar. Það á jafnt við nýjar framkvæmdir sem og breytingar á nýverandi byggð og innviðum. Með matinu á að fást heildstæð mynd af áhrifum á samgöngukerfi Vegagerðarinnar, auk þess að styðja við ákvarðanatöku.  

Leiðbeiningar um samgöngumat má finna hér.