Nauðsynlegt er að ráðast í lagfæringar á hluta Snæfellsnesvegar við Kaldármela þar sem nýlagt klæðingarlag skemmdist skömmu eftir útlögn. Verktaki mun fræsa upp klæðingarlagið á kaflanum og leggja það að nýju við fyrsta tækifæri.

Framkvæmdasvæði verksins: Snæfellsnesvegur (54), Brúarhraun - Hraunsmúli, endurbætur
Verkið „Snæfellsnesvegur (54), Brúarhraun – Hraunsmúli, endurbætur“ felst í endurbyggingu vegarins á um 6 km kafla þar sem lögð eru ný styrktar- og burðarlög auk klæðingar. Verkið var boðið út 3. febrúar og samið við Borgarverk um framkvæmdina. Vinna við verkið hófst í byrjun maí með efnisvinnslu. Verkið er nokkuð á eftir upphaflegri áætlun, meðal annars vegna breytinga sem gera þurfti á hönnun eftir að framkvæmdir hófust.
Fimmtudaginn 20. ágúst var neðra lag klæðingar lagt á um eins kílómetra kafla sem liggur um mitt framkvæmdasvæðið. Veðurspár gerðu ráð fyrir þurru veðri sólarhring eftir útlögn og stóð til að sópa umframefni af veginum daginn eftir. Veður breyttist hins vegar fyrr en spár gerðu ráð fyrir og mikil og viðvarandi rigning kom í veg fyrir að hægt væri að sópa kaflann. Ef ekki næst að sópa getur laust steinefni skemmt yfirborð vegar.
Samspil þessara aðstæðna og mikillar þungrar umferðar um veginn varð til þess að klæðingarlagið skemmdist verulega. Því er nauðsynlegt að fjarlægja það og leggja nýtt.
Vegagerðin og verktaki vinna nú að útfærslu næstu skrefa. Skemmda klæðingarlagið verður fræst upp eins fljótt og aðstæður leyfa og kaflinn lagfærður. Nánari upplýsingar um tímasetningu munu liggja fyrir þegar framkvæmdaáætlun hefur verið uppfærð.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið á kaflanum staðfesta að skemmdirnar séu bundnar við klæðingarlagið. Styrktar- og burðarlög vegarins eru óskemmd.