26. maí 2026
Kynn­ingar­fundur vegna Sæbrautar­stokks

Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur boða til opins kynningarfundar vegna Sæbrautarstokks mánudaginn 1. júní n.k. kl. 17 í Vogaskóla.

Yfirlitskort af Sæbrautarstokki.

Yfirlitskort af Sæbrautarstokki.

Sæbrautarstokkur er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og verður staðsettur á u.þ.b. 1 km löngum kafla frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Á yfirborði stokksins verður nýr, grænn hverfisgarður sem bindur saman hverfin Vogahverfi og Vogabyggð. 

 

Markmið Sæbrautarstokks er að bæta umhverfisgæði og tengja betur saman hverfi, greiða fyrir umferðarflæði á Sæbraut og að greiða götu Borgarlínunnar. Þá er mannvirkinu ætlað að bæta flæði vöruflutninga við Sundahöfn og er ein af forsendum Sundabrautar. 

 

Á fundinum mun Reykjavíkurborg ásamt ráðgjöfum frá Arkís arkitektum, Landslagi og Teiknistofunni Tröð kynna þær deiliskipulagstillögur sem nú eru í auglýsingu. Þá mun Vegagerðin ásamt ráðgjöfum frá Verkís verkfræðistofu kynna framkvæmd Sæbrautarstokks auk umhverfismatsskýrslu vegna framkvæmdarinnar.

 

Hægt er að nálgast frekari gögn um málið í skipulagsgátt: www.skipulagsgatt.is 

Opið er fyrir athugasemdir til og með 24. júní n.k.

 

Dæmi um hvernig yfirborð stokksins gæti litið út.

Dæmi um hvernig yfirborð stokksins gæti litið út.

Svona gæti stokkurinn litið út.

Svona gæti stokkurinn litið út.

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km kafla.

Fyrirhugað er að Sæbraut verði sett í stokk á um 1 km kafla.

Svona gæti yfirborð stokksins litið út.

Svona gæti yfirborð stokksins litið út.