9. september 2026
Íbúa­fundur vegna fyrir­hugaðra fram­kvæmda á Vatns­nesi

Vegagerðin boðar til íbúafundar á Hótel Hvítserk fimmtudaginn 10. september klukkan 17:00 vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Vatnsnesi, frá Skarði í vestri að Hringvegi í austri.

Vatnsnesvegur.

Vatnsnesvegur.

Á fundinum verða fyrirhugaðar vegaframkvæmdir kynntar og farið yfir áformaða framkvæmdaröð. Einnig verður kynnt það ferli sem tengist viðræðum við landeigendur og könnun á matsskyldu.

Um framkvæmdina

Vegagerðin vinnur að undirbúningi endurbyggingar Vatnsnesvegar (711) frá Skarði í vestri að Hringvegi í austri og Síðuvegar frá Hringvegi að Vatnsnesvegi. Framkvæmdakaflinn er í heildina rúmlega 60 km langur. Núverandi vegir eru mjóir og með malaryfirborði að mestu leyti. Fyrirhugað er að breikka og styrkja vegina, en þeir verða byggðir upp 6,5-7,0 m breiðir. Endurbyggðir vegir munu að mestu fylgja núverandi vegstæði en plan- og hæðarlega þeirra verður löguð og á þá verður lagt bundið slitlag.

Verkefnið er á Samgönguáætlun á árunum 2027-2034 og hefur Vegagerðin gert tillögu að áfangaskiptingu sem verður kynnt betur á íbúafundinum.

Öll eru velkomin og boðið verður upp á kaffiveitingar.