19. maí 2026
Hval­fjarðar­göng – lokan­ir um hvíta­sunnu­helgi

Hvítasunnuhelgin er mikil ferðahelgi og því mikilvægt að ferðalangar viti af lokun Hvalfjarðarganga vegna framkvæmda við nýja lýsingu.

Mikið magn af gömlum strengjum féll til við endurnýjun lýsingar í Hvalfjarðargöngum.

Mikið magn af gömlum strengjum féll til við endurnýjun lýsingar í Hvalfjarðargöngum.

Opið:

  • Frá kl. 06:00 föstudaginn 22. maí til kl. 21:30 sunnudagskvöldið 24. maí.
  • Frá kl. 06:00 mánudaginn 25. maí til kl. 21:30 að mánudagskvöldi.

Lokað:

  • Frá kl. 21:30 sunnudagskvöldið 24. maí til kl. 6:00 að mánudagsmorgni, 25. maí.
  • Frá kl. 21:30 mánudagskvöldið 25. maí til kl. 6:00 að þriðjudagsmorgni, 26. maí.

Framkvæmdir hafa staðið yfir í Hvalfjarðargöngum að nóttu til frá 7. apríl sl. Unnið er að endurnýjun á öllum lýsingarbúnaði ganganna sem hefur verið í notkun frá því að göngin voru opnuð árið 1998. Framkvæmdir í jarðgöngum eru flóknar og fara fram í þröngu rými og því er nauðsynlegt að loka göngunum meðan á þeim stendur.

Upphafleg verklok voru áætluð 29. maí og stefnir allt í að sú tímaáætlun muni standast.

Verkið er því á áætlun og í byrjun vikunnar var búið að setja upp öll ljós á akstursleiðum í göngunum. Þá var búið að taka niður 85% af gömlum strengjum. Þetta er mikið magn eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Þá er unnið að ýmsum öðrum verkefnum, eins og að setja upp stiga og ljós í útskotum, draga strengi og tengja, vinna í töflurýmum og uppsetningu fleiri vinnuljósa.

Í þessari viku verður lokið við að taka niður gömlu ljósin og strengina og haldið áfram með vinnu á stigum, í útskotum og við töflur í tæknirýmum ásamt ýmsu fleiru.

Unnið er við þröngar og oft erfiðar aðstæður í göngunum.

Unnið er við þröngar og oft erfiðar aðstæður í göngunum.