20. janúar 2026
Hrun­vörn reist við Holtsnúp

Hrunvörn reist við Holtsnúp

Þrjú hundruð metra löng hrunvörn við Holtsnúp undir Eyjafjöllum verður boðin út á næstu vikum og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist í vor. Vegagerðin hefur haft þennan stað til skoðunar um nokkurt skeið og lét hanna fyrirhugað mannvirki í kjölfar hörmulegs banaslyss sem varð á þessum stað í mars 2025. Einnig hefur verið skoðað að færa veginn sem væri framtíðarlausn en töluvert kostnaðarmeiri. Fjölmargir þekktir grjóthrunsstaðir eru við þjóðvegi landsins og varnarmannvirki hafa verið sett upp við nokkra þeirra, en þörf er fyrir fleiri slík mannvirki.

Hringvegur undir Eyjafjöllum. Í fjarska sést Holtsnúpur.

Hringvegur undir Eyjafjöllum. Í fjarska sést Holtsnúpur.

Við Holtsnúp er þekktur grjóthrunsstaður en frá banaslysinu í mars hefur tvisvar hrunið grjót úr hlíðinni, nú síðast í desember með þeim afleiðingum að hætta skapaðist og ökumaður ók á grjótið. Vegagerðin lét hanna hrunvörn við Holtsnúp á síðasta ári en þar er gert ráð fyrir að moka svokallaðan „skáp“ inn í hlíðina á um 300 m löngum kafla og reisa tveggja metra háan „Gabion“-grjótvegg milli hlíðar og vegar. Um er að ræða járngrindarkassa fyllta með grjóti. Heildarkostnaður við framkvæmdina er áætlaður um 80 m.kr.

Þekktir grjóthrunsstaðir við vegakerfi landsins eru 86 talsins og eru grjótvarnir við fimm verstu staðina. Tæplega 100 tilvik hafa verið skráð síðustu 25 árin þar sem bílar hafa ekið á grjót. Þar af voru sex með minniháttar meiðslum en önnur án meiðsla. Skráð tilvik um grjót á vegum hafa verið á bilinu 30 til 60 ár ári og má telja mikla mildi að ekki hafi fleiri slasast en raun ber vitni.

Það eru því vissulega fjölmargir staðir á landinu þar sem skriðuhætta er fyrir hendi og m.a. féll stór steinn niður á Hringveg úr Reynisfjalli síðastliðinn desember og mildi að enginn varð fyrir honum. Hins vegar er óvíða meiri umferð en við Holtsnúp en meðaltalsumferð á dag er um 2.700 bílar. Því var talið brýnt að forgangsraða fjármögnun hrunvarnar á þessum stað.

Þörf fyrir sérstakar öryggisaðigerðir eru víða á vegakerfinu. Vegagerðin skráir alla staði sem af ýmsum ástæðum þyrftu á slíkum aðgerðum að halda og forgangsraðar þeim framkvæmdum í samræmi við áhættu og tiltækar fjárveitingar.

Betur fór en á horfðist þegar ökumaður ók á grjót sem féll úr Holtsnúpi í desember 2025.

Betur fór en á horfðist þegar ökumaður ók á grjót sem féll úr Holtsnúpi í desember 2025.