25. september 2026
Hring­vegur­inn við Jökuls­árlón lokaður á sunnu­dags­kvöld fram á morg­un

Vegna malbikunarframkvæmda og viðgerða verður Hringvegurinn við Jökulsárlón lokaður frá kl. 20:00 á sunnudagskvöld fram til kl. 07:00 á mánudagsmorgun. Bílum verður þó hleypt einu sinni í gegnum framkvæmdasvæðið kl. 22:00

Undarfarna daga hefur Colas ehf. unnið að malbikunarframkvæmdum fyrir Vegagerðina. Um er að ræða 4,1 km á Breiðamerkursandi vestan við Jökulsárlón. Einnig verður á sama tíma unnið að viðgerðum við báða brúarenda brúarinnar yfir Jökulsá á Breiðamerkursandi.

Brúin og vegurinn eru einbreið og engin hjáleið möguleg. Því er óhjákvæmilegt að loka meðan á þessum nauðsynlegu framkvæmdum stendur.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og virða merkingar á vinnusvæðinu.

Myndina tók Hallvarður Vignisson, Hnit, fyrir Colas