2. október 2025
Hraða­mynda­vélar teknar í notk­un í Þing­valla­þjóð­garði

Hraðamyndavélar teknar í notkun í Þingvallaþjóðgarði

Markmiðið er að auka umferðaröryggi

Þingvallavegur (36).

Þingvallavegur (36)

Þann 3. október nk. verða tvær hraðamyndavélar á Þingvallavegi austan þjónustumiðstöðvar teknar í notkun.

Sjálfvirkt hraðaeftirlit er ein af megináherslum í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að draga úr ökuhraða á þjóðvegum og auka þar með umferðaröryggi. Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot eru sendar samstundis til lögreglu. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða. Skilti sem gefa eftirlitið til kynna hafa verið sett upp á Þingvallavegi.

Vegagerðin ber ábyrgð á tæknilegri framkvæmd eftirlitsins, en Ríkislögreglustjóri ber ábyrgð á úrvinnslu og innheimtu sekta.