Hoffellsárbrú á Hornafjarðarvegi (987) verður lokuð allri umferð frá kl. 13:30 mánudaginn 5. október til miðnættist fimmtudaginn 8. október 2026. Vegfarendur eru beðnir um að nota Hringveg (1) um Hornafjarðarfljót á lokunartímanum. Ekki er tekið veggjald af akstri um Hringveginn meðan á lokuninni stendur.

Framkvæmdir við einbreiða Hoffellsárbrú fara fram 5. til 8. október.
Framkvæma þarf nauðsynlegar viðhaldsaðgerðir á Hoffellsárbrú sem ekki var mögulegt að ráðast í á meðan Hornafjarðarvegur (987) gegndi hlutverki Hringvegar (1). Á þeim tíma var ekki önnur akstursleið um svæðið og því ekki mögulegt að loka brúnni vegna viðgerða.
Nú þegar umferð um Hringveg fer um nýjan Hringveg (1) um Hornafjörð hefur skapast tækifæri til að ráðast í þessar viðgerðir. Viðgerðir áttu að hefjast í síðustu viku en var frestað vegna veðurs.
Hoffellsárbrú verður lokuð allri umferð meðan á framkvæmdum stendur. Hornafjarðarvegur (987) er opinn fyrir umferð beggja megin brúarinnar en varað er við lokun brúarinnar við báða enda vegarins.
Engin gjaldtaka verður á Hringvegi (1) um Hornafjörð á meðan Hoffellsárbrú er lokuð. Vegfarendur sem þurfa að fara um Hringveginn vegna lokunarinnar greiða því ekki veggjald á tímabilinu.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og virða merkingar á vinnusvæðinu. Vegagerðin biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.