Grunnur steyptur að undirstöðum Ölfusárbrúar
ÞG Verk nýtti einmuna veðurblíðu í desember til að steypa undirstöður fyrir turn nýrrar Ölfusárbrúar sem rísa mun í Efri-Laugardælaeyju. Í myndbandinu sem hér fylgir er rætt við Skúla Sigvaldason, staðarstjóra ÞG Verks sem heldur utan um framkvæmdirnar við verkið Hringvegur (1) um Ölfusá.

Steypuvinna í Efri_Laugardælaeyju í desember 2025.
Steypan var í sjálfu sér ekki umfangsmikil miðað við önnur steypuverkefni en markar nokkur tímamót þar sem þetta er fyrsta steypan í Efri-Laugardælaeyju. Mikill og krefjandi undirbúningur liggur að baki því að hefja framkvæmdir í eyjunni enda þarf meðal annars að koma þangað stórvirkum vinnuvélum.
Í desember var akkúrat ár síðan fyrsta skóflustungan var tekin að verkinu. Skúli segir framkvæmdir ganga mjög vel, allir verkþættir séu á áætlun. Með þessari steypu úti í eyju er þeim áfanga náð að byrjað er að steypa allar undirstöður fyrir Ölfusárbrú.

Steypuvinna í Efri_Laugardælaeyju í desember 2025.

Skúli Sigvaldason, staðarstjóri ÞG Verk.

Steypuvinna í Efri_Laugardælaeyju í desember 2025.

Steypuvinna í Efri_Laugardælaeyju í desember 2025.