4. nóvember 2026
Grjót fór í gegn­um nýjar hrun­varn­ir við Holtsnúp

Stór steinn fór í gegnum nýuppsettar hrunvarnir meðfram Hringveginum við Holtsnúp undir Eyjafjöllum í morgun. Steinninn braut sér leið í gegnum grjótgrindurnar og olli töluverðum skemmdum á þeim.

Skemmdir á hrunvörn við Holtsnúp. Mynd: Aðsend

Skemmdir á hrunvörn við Holtsnúp. Mynd: Aðsend

Hrunvarnirnar voru nýlega settar upp á um 300 metra kafla þar sem mikil hætta er á grjóthruni. Tilgangur þeirra er að auka öryggi vegfarenda á þessum stað.

Áætlað er að steinninn sé um tíu tonn að þyngd og því mun stærri en algengast er að hrynji úr fjallinu. Við hönnun varnanna var miðað við steina á bilinu þrjú til fjögur tonn. Steinninn er jafnframt mun stærri en sá sem olli banaslysi á þessum stað í mars 2025.

Vegagerðin lítur atvikið alvarlegum augum og er að skoða skemmdirnar. Gatinu í veggnum verður lokað til bráðabirgða og í framhaldi verður metið hvað þarf að gera til að tryggja öryggi vegfarenda.