Umfangsmiklar lokanir verða á hluta Sæbrautar frá kl. 22 í kvöld þegar ný göngu- og hjólabrú verður hífð upp í heilu lagi og komið fyrir á stigahúsum sem reist hafa verið við Dugguvog og Snekkjuvog. Samtímis verða settar upp hæðarslár sitt hvoru megin við nýju brúna þar sem hæðin er takmörkuð við 4,8 metra og verður það framvegis. Vinnan fer fram að næturlagi til að hafa sem minnst áhrif á umferð. Stefnt er á að opna aftur fyrir umferð á þessum kafla kl. 6 í fyrramálið.
Nýja göngubrúin er um miðja vegu milli gatnamóta Sæbrautar við Súðavog annars vegar og Kleppsmýrarvegs hins vegar. Með henni verður til ný gönguleið milli Dugguvogs við Tranavog og Snekkjuvogs.
Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla.
Vegagerðin beinir þeim tilmælum til verktaka og flutningafyrirtækja að kynna þessar hæðatakmarkanir fyrir sínu starfsfólki. Ástæða er til þess að hvetja ökumenn stærri bíla til að setja niður palla á vörubílum, pakka saman bílkrönum og svo framvegis, svo ekki komi til óhappa eða slysa vegna hæðatakmarkananna.
Þegar brúin verður komin á sinn stað heldur vinna við stigahúsin áfram. Gengið verður frá tengingum milli brúar og stigahúsa, sett upp lýsing og myndavélakerfi, gengið frá jarðvegi við stigahúsin og göngu- og hjólastígar malbikaðir. Lyftur verða síðan settar upp við báða brúarenda um næstu mánaðamót. Áætlað er að taka brúna í notkun í júní.
Framkvæmdin er samvinnuverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkurborgar og Betri samgangna og er fjármögnuð af Samgöngusáttmálanum.
Vegagerðin hefur yfirumsjón með verkinu fyrir hönd verkkaupa.
Sæbraut, horft í suður.
Sæbraut, horft í norður.
Tölvuteikning af brúnni.
Hér má sjá hæðatakmarkanir.