Yfir 60 manns sóttu íbúafund Vegagerðarinnar á Hótel Hvítserk fimmtudaginn 10. september þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir við Vatnsnesveg og Síðuveg voru kynntar. Fram undan eru viðræður við landeigendur vegna fyrsta framkvæmdakaflans sem stefnt er að því að bjóða út í byrjun árs 2027.

Margrét Silja Þorkelsdóttir, svæðisstjóri Norðursvæðis Vegagerðarinnar. Mynd: Húnaþing Vestra
Mikill áhugi var á fundinum og sköpuðust líflegar umræður um fyrirhugaðar framkvæmdir. Fulltrúar Vegagerðarinnar fóru yfir umfang verkefnisins, fyrirhugaða framkvæmdaröð og næstu skref, auk þess sem spurningum fundargesta var svarað.
Að lokinni kynningu gafst gestum tækifæri til að ræða nánar við fulltrúa Vegagerðarinnar um einstaka þætti verkefnisins.

Vegagerðin vinnur að undirbúningi endurbyggingar Vatnsnesvegar (711) frá Skarði í vestri að Hringvegi í austri og Síðuvegar frá Hringvegi að Vatnsnesvegi. Framkvæmdakaflinn er í heild um 65 km langur.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum verði skipt í sex áfanga og að þær standi yfir á árunum 2027–2034. Samkvæmt núverandi áætlun verður fyrsti áfanginn unninn á árunum 2027–2028 og stefnt er að útboði hans í byrjun árs 2027.
Á næstu dögum hefjast formlegar viðræður við landeigendur vegna fyrsta framkvæmdakaflans. Samhliða heldur áfram undirbúningur síðari áfanga verkefnisins.
Framkvæmdir við Vatnsnesveg hafa lengi verið mikið hagsmunamál íbúa og sveitarfélagsins og var ánægja með góða þátttöku og málefnalegar umræður á fundinum.
Nánari upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir og áfangaskiptingu þeirra má finna í glærukynningu frá íbúafundinum.

