Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní. Gjaldtaka á nýja veginum hefst í september en veggjöld standa undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins.

Brúin yfir Hoffellsá, horft til norðurs.
Innheimta veggjaldsins fer fram undir merkjum Spalar ehf. Markmiðið er að gera gjaldtökuna eins einfalda fyrir notendur og mögulegt er.
Gjaldtakan verður að fullu sjálfvirk og vegfarendur þurfa ekki að skrá sig eða greiða sérstaklega þegar ekið er um veginn. Myndavélar lesa skráningarnúmer ökutækja og upplýsingar eru sóttar í ökutækjaskrá. Reikningur fyrir ferðir hvers mánaðar er síðan sendur í heimabanka.
Á spolur.is er hægt að nálgast yfirlit yfir notkun og upplýsingar um gjaldtökuna. Þar verður einnig hægt að greiða fyrir stakar ferðir. Vefsíðan er í vinnslu og fer í loftið í vikunni.
Veggjaldið var meðal annars ákveðið með hliðsjón af þeim ávinningi sem vegfarendur hafa af nýja veginum, svo sem styttri ferðatíma, lægri eldsneytis- og rekstrarkostnaði og betri akstursaðstæðum.
Stakt gjald fyrir ökutæki undir 3,5 tonnum verður 1.500 krónur, 2.100 krónur fyrir millistóra bíla frá 3,5 til 7,5 tonna og 4.500 krónur fyrir bíla yfir 7,5 tonnum. Gjaldflokkur miðast við heildarþyngd ökutækja.
Afsláttarkjör verða fyrir litla og millistóra bíla og þak sett á mánaðarlegar greiðslur. Þannig er ekki greitt meira en 18.750 krónur á mánuði fyrir minnstu bílana og ekki meira en 26.250 krónur fyrir millistóra bíla. Hámarksgjaldinu er náð við 22 ferðir á mánuði. Ekkert mánaðarlegt hámark verður á greiðslum fyrir ökutæki yfir 7,5 tonnum.
Með framkvæmdinni styttist Hringvegurinn um 12 kílómetra og leiðin frá Reykjavík til Hornafjarðar um rúma 14 km. Áætlað er að ferðatími styttist um 15 til 20 mínútur. Lagðir voru tæpir 19 km af nýjum Hringvegi, 9 km af öðrum vegum og byggðar fjórar tvíbreiðar brýr, sem eru samtals 468 m langar. Einnig var gerður áningarstaður og hringtorg við Hafnarveg.
Verkið er fyrsta samvinnuverkefnið sem Vegagerðin stendur að. Samkvæmt lögum um samvinnuverkefni er gert ráð fyrir að veggjöld standi straum af að lágmarki 50% af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri og þróun samgöngumannvirkisins. Heildarkostnaður við framkvæmdina í Hornafirði er áætlaður rúmlega 10 milljarðar króna.
Ökutæki undir 3,5 tonn | ||
Stök ferð | kr. á ferð | 1.500 |
2-5 ferðir í mánuði | kr. á ferð | 950 |
6-22 ferðir í mánuði | kr. á ferð | 750 |
Hámarksgjald á ökutæki | kr. á mánuði | 18.750 |
Ökutæki 3,5 til 7,5 tonn | ||
Stök ferð | kr. á ferð | 2.100 |
2-5 ferðir í mánuði | kr. á ferð | 1.330 |
6-22 ferðir í mánuði | kr. á ferð | 1.050 |
Hámarksgjald á ökutæki | kr. á mánuði | 26.250 |
Ökutæki yfir 7,5 tonn | ||
Stök ferð | kr. á ferð | 4.500 |
*Gert er ráð fyrir að gjaldskráin verði endurskoðuð reglulega. | ||