Vinna við Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, er komin í fullan gang eftir jólafrí og miðar vel áfram. Unnið er að frágangi á nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut, vinna við nýja göngubrú yfir Arnarnesveg stendur yfir, sem og ný undirgöng við Rjúpnaveg.

Vegstæði Arnarnesvegar milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.
Þessa dagana er unnið að frágangi nýrrar brúar yfir Breiðholtsbraut, sem var steypt í byrjun nóvember. Nú stendur yfir vinna við að fjarlægja undirslátt af akbraut til norðurs, sem hefur verið lokuð frá því í sumar á meðan framkvæmdir hafa staðið yfir. Ráðgert er að færa umferð yfir á akbrautina um næstu mánaðarmót og við það verður hæðartakmörkunum aflétt, sem mun bæta umferðarflæði á svæðinu.
Samhliða því stendur yfir vinna við undirslátt nýju göngubrúarinnar yfir Arnarnesveg, sem er staðsett á móts við Turnahvarf. Sú brú er mikilvægur hluti framkvæmdarinnar og mun bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á svæðinu. Áætlað er að steypa brúna fyrir páska, að því gefnu að veður og aðstæður verði hagstæð.

Undirgöng við Rjúpnaveg eru í smíðum.

Ný göngubrú yfir Arnarnesveg er í smíðum.
Ný undirgöng, sem eru í byggingu undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg, eru að hluta til gerð úr forsteyptum einingum. Þær eru komnar á sinn stað og er nú unnið við frágang þeirra og uppslátt fyrir stoðveggjum sem munu koma við enda undirganganna.
Í vegstæði Arnarnesvegar, milli Breiðholtsbrautar og Rjúpnavegs, er unnið við fyllingar og frágang ofanvatnslagna. Við göngu- og hjólastíg, sem verið er að leggja austan við veginn, er unnið við uppsetningu ljósastaura og frágangi á burðarlagi undir malbik.
Fjölmörgum lykilverkefnum er þegar lokið. Helst ber að nefna nýja göngu- og hjólabrú yfir Dimmu sem er tilbúin og hefur þegar verið tekin í notkun. Nokkrir kaflar á Breiðholtsbraut hafa verið malbikaðir, sem og göngu– og hjólastígar í Elliðaárdal.
Laus jarðefni sem til falla vegna framkvæmdanna hafa verið flutt í Vetrargarð Reykjavíkurborgar. Vetrargarðurinn er í uppbyggingu þar sem skíðabrekkan er við Jafnasel. Einnig hefur verið sáð í stærstan hluta svæðisins.
Áætlað er að framkvæmdum við Arnarnesveg og tengd verkefni ljúki í nóvember 2026. Arnarnesvegur, 3. áfangi, er hluti af stofnvegaverkefnum sem heyra undir Samgöngusáttmálann.
Ljósmyndir / Vilhelm Gunnarsson

Hér sést brúin yfir Breiðholtsbraut ofan frá.

Umferðin verður færð milli akreina.

Brúin yfir Dimmu tengist inn á göngu-og hjólastíga.

Nýir göngu- og hjólastígar eru lagðir samhliða framkvæmdum.

Undirgöngin eru að hluta til byggð úr forsteyptum einingum.

Undirgöngin eru við Rjúpnaveg.