Nýlega var opnað fyrir umferð yfir nýja brú sem tengir Arnarnesveg og Breiðholtsbraut. Samtímis var gatnamótum við Vatnsendahvarfsveg lokað tímabundið meðan unnið er að breytingum á þeim og götunum í kring.
Tafir hafa orðið hjá þeim sem koma yfir brúna á leið austur en umferðarljós stýra vinstri beygju af Arnarnesvegi inn á Breiðholtsbraut.
Rétt er að ítreka að svæðið er vinnusvæði, framkvæmdinni er ekki lokið og ekki hægt að draga ályktanir af framtíðar umferðarþunga um þessi ljósastýrðu gatnamót út frá því.
Staðan í dag er sú að aðeins ein beygjuakrein af tveimur opin þar sem aðeins ein akrein tekur nú við umferðinni á Breiðholtsbraut sem varir meðan að framkvæmdir standa yfir.
Framkvæmdum mun að fullu ljúka í byrjun september og þá verður opið bæði fyrir hægri beygju inn á Vatnsendahvarfsveg og hægri beygju af honum til austurs inn á Breiðholtsbraut. Þannig að hluti þeirra umferðar sem nú fer yfir brúna til að fara austur Breiðholtsbraut mun fara þá leið.
Umferðarljósastýringunni hefur verið breytt til bráðabirgða vegna þessa sem lengir þann tíma beygjuljósin vara. Fylgst verður vandlega með umferð þegar framkvæmdum er lokið og ljósastillingar uppfærðar með tilliti til þess hvernig umferðin hagar sér.
Framkvæmdum við Arnarnesveginn lýkur um mánaðamótin nóvember desember og vegurinn þá opnaður alla leið inn í Kópavog.
Vegfarendur eru beðnir um að aka með gát um framkvæmdasvæðið, virða hraðatakmarkanir og almennt sýna tillitssemi.

Arnarnesvegur 7. júlí 2026