Framkvæmdir við Höfðabakkabrú
Framkvæmdir á Bæjarhálsi hafa gengið vel undanfarnar vikur og í kvöld hefjast aðgerðir við Höfðabakkabrú. Miðað er við að vinna verkið á meðan minnsta umferðin er.
Verktaki mun hefja framkvæmdir á yfirborðsfrágang á gönguleiðum og ídrátt fyrir götulýsingu og umferðarljós á umferðareyjum sem eru til staðar. Búast má við töfum á umferð vegna þessara framkvæmda.
Þá þarf tímabundið að loka gönguleiðum á Bæjarhálsi til að geta klárað lagnavinnu. Sú lokun hefst á morgun og mun standa yfir í 2-3 vikur. Gangandi vegfarendum verður beint að undirgöngum við Árbæjarsafn vestan vinnusvæðis og niður að Bitruhálsi/Hraunbæ til austurs.
Reykjavíkurborg og Vegagerðin vinna saman að umræddum framkvæmdum.
Hjáleið fyrir gangandi má sjá á myndinni hér fyrir neðan.
Framkvæmdir standa yfir við Höfðabakkabrú.
Hjáleiðir.