Framkvæmdum við Arnarnesveg, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, miðar vel áfram. Uppsetning á vegriði og hljóðvegg stendur yfir á nýju brúnni yfir Breiðholtsbraut. Unnið er að undirslætti nýrrar göngubrúar yfir Arnarnesveg. Ný undirgöng eru í byggingu við Rjúpnaveg og í vegstæði Arnarnesvegar er m.a. verið að setja upp ljósastaura. Um 50 manns starfa við verkið; smiðir, vélamenn, verkamenn og verkstjórar.

Frágangur stendur yfir á nýrri brú yfir Breiðholtsbraut.
Unnið er að frágangi nýju brúarinnar yfir Breiðholtsbraut þar sem verið er að setja upp vegrið og hljóðvegg sem skilur akbrautina frá göngu- og hjólaleiðinni.
Einnig er unnið við undirslátt nýju göngubrúarinnar yfir Arnarnesveg til móts við Turnahvarf. Gert er ráð fyrir að brúin verði steypt fyrir páskana.
Við Rjúpnaveg eru ný undirgöng í byggingu undir Arnarnesveg. Þau eru að hluta til gerð úr forsteyptum einingum sem þegar hafa verið settar á sinn stað. Nú stendur yfir frágangur eininganna og uppsláttur fyrir stoðveggjum sem koma við enda undirganganna.
Í vegstæði Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar, er unnið að fyllingum, uppsetningu ljósastaura og frágangi ofanvatnslagna. Við göngu- og hjólastíginn, sem verið er að leggja austan við veginn er unnið að uppsetningu ljósastaura og frágangi á burðarlagi undir malbik.
Fjölmörgum lykilverkefnum er þegar lokið. Má þar nefna nýja göngu- og hjólabrú yfir Dimmu sem er tilbúin og hefur þegar verið tekin í notkun. Nokkrir kaflar á Breiðholtsbraut hafa verið malbikaðir, sem og göngu– og hjólastígar í Elliðaárdal.
Áætlað er að framkvæmdum við Arnarnesveg og tengd mannvirki ljúki í nóvember 2026. Arnarnesvegur, 3. áfangi, er hluti af stofnvegaverkefnum sem heyra undir Samgöngusáttmálann.
Ljósmyndir / Vilhelm Gunnarsson

Hér sést brúin ofan frá og í átt að nýrri göngubrú til móts við Turnahvarf.

Búið er að fjarlægja undirsláttinn.

Hér sést göngubrúin ofan frá.

Áætlað er að steypa nýja göngubrú fyrir páska.

Hér til hægri sést móta fyrir nýrri skíðabrekku.

Horft í norðausturátt frá Arnarnesvegi.

Hér sjást undirgöngin vel.

Undirgöng í byggingu.

Frá verkstað.

Um 50 manns vinna nú að verkinu.