Þriðjudaginn 9. júní voru opnuð tilboð í framkvæmdir á öðrum áfanga uppbyggingar Bíldudalsvegar um Mikladal. Þó nokkrar framkvæmdir verða á Vestfjörðum á næstu vikum. Unnið er að því að fræsa yfirborð á hluta Bíldudalsvegar vegna skemmda. Þá verður unnið í nokkrum styrkingarverkefnum.

Unnið er að því að fræsa yfirborð Bíldudalsvegar þar sem ástand hans er orðið það slæmt að ákveðið hefur verið að gera hann að malarvegi.
Þrjú tilboð bárust í verkið Bíldudalsvegur (63), um Mikladal – endurbætur, 2. áfangi. Lægsta tilboðið var frá Þrótti ehf. sem var um 43 m.kr. undir áætluðum verktakakostnaði. Hlekkur á útboð
Verkið felst í endurbyggingu á 3,9 km kafla á Bíldudalsvegi. Þetta er annar áfangi í Mikladal frá enda 1. áfanga og niður úr svokallaðri Dúddíarbeygju. Innifalið í endurbyggingunni er gerð fyllinga, útlögn styrktar- og burðarlags, tvöföld klæðing ásamt niðurlögn ræsa, víra- og bitavegriða og vinnsla efnis í burðar og styrkjarlög. Áætlað er að verkinu ljúki í ágúst 2027.
Framkvæmdirnar eru afar þarfar enda er nú unnið að því að fræsa yfirborð Bíldudalsvegar þar sem ástand hans er orðið það slæmt að ákveðið hefur verið að gera hann að malarvegi.
Fleiri framkvæmdir eru á döfinni á Vestfjörðum en unnið verður að nokkrum styrkingarverkefnum á næstu vikum.
Á Barðastrandarvegi er stefnt að því að taka kafla inn við Vesturbotn og einnig kafla á móts við bæinn Vaðal en á þeim stöðum hefur yfirborð vegar aflagast og vegurinn orðinn mjög ósléttur. Vegurinn verður lagður og klæddur.
Á Djúpvegi er stefnt á að laga þrjá kafla. Þeir eru í Hestfirði, Ísafirði við Arngerðareyri og í Norðdal.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgæslu og tillitssemi við þessar framkvæmdir þar sem hraði verður tekinn niður.

Bíldudalsvegur (63), um Mikladal – endurbætur, 2. áfangi