Framkvæmdir við breytingar á gatnamótum Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku í Kópavogi hefjast 15. september. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Kópavogsbæjar og er áætlaður verktími þrír til fjórir mánuðir.

Framkvæmdir við breytingar á gatnamótum Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku í Kópavogi hefjast 15. september.
Framkvæmdin felur í sér breytingar á gatnamótunum með það að markmiði að bæta útfærslu þeirra og aðstöðu fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur.
Þrjú hægribeygjuframhjáhlaup við gatnamótin verða aflögð og breytingar gerðar á miðeyjum. Þá verður lagður nýr göngustígur meðfram Nýbýlavegi, suðvestan við gatnamótin.
Á framkvæmdasvæðinu verður núverandi yfirborð rifið upp og ráðist í nauðsynlega jarðvinnu og nýjan yfirborðsfrágang.
Framkvæmdasvæðið nær yfir gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku. Gera má ráð fyrir að framkvæmdirnar hafi áhrif á umferð um svæðið meðan á þeim stendur og eru vegfarendur hvattir til að sýna aðgát og fylgja merkingum á framkvæmdasvæðinu.
Verktaki er Stjörnugarðar og er áætlað að framkvæmdum ljúki innan þriggja til fjögurra mánaða. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig áföngum í verkinu verður skipt upp.

Myndin sýnir áfangaskiptingu á framkvæmdum við gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku.