19. febrúar 2026
Fram­kvæmd­ir á Vest­fjarða­vegi á Dynj­andis­heiði

Framkvæmdir á Vestfjarðavegi á Dynjandisheiði

Framkvæmdir við þriðja og síðasta áfanga Vestfjarðavegar á Dynjandisheiði fóru vel af stað eftir áramótin. Um þrjátíu manns eru við störf og unnið er á nokkrum stöðum samtímis.

Yfirlitsmynd frá Dynjandisheiði.

Yfirlitsmynd frá Dynjandisheiði.

Verkið felur í sér nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 7,2 km kafla, að mestu í nýju vegstæði, auk 1 km kafla á Dynjandisvegi inn að fossinum Dynjanda. Einnig verður gert keðjunarplan nálægt veginum að Dynjanda og áningastaður verður uppi á heiðinni við Dynjandisá. Veðrið hefur verið afar gott miðað við árstíma sem gerir það mögulegt að nýta tímann vel við vegagerð.

Vinna við veginn inn að Dynjanda er langt kominn. Búið er að setja niður tvö stór ræsi í ánni Svínu, sem fellur í Dynjandisvog og áætlað er að klæða veginn í sumar.

Við nýtt vegstæði Vestfjarðavegar sem liggur upp á Dynjandisheiði er nú unnið við sprengingar og skeringar. Unnið er á um 2 km kafla frá Afréttarvatni niður að Búðarvík. Að mestu er um að ræða lausar skeringar á þessum kafla eða um 240 þúsund rúmmetrar.

Unnið er að því að móta nýja veginn frá Búðarvík upp að Afréttarvatni, en þá verður almenn umferð ekki á sama stað og vinnuumferð.

Búið er að sprengja um 75 þúsund rúmmetra í vegstæði. Hluti af efninu fer í burðarlag og styrktarlag en að mestu fer efnið í fyllingar. Þá er búið að sprengja um 6000 rúmmetra í námu sem er notað í klæðingu.

Næstu vikurnar er gert ráð fyrir að halda áfram með skeringar og fyllingar frá Afréttarvatni niður að Búðarvík en heildarfyllingarmagn á þessum stað er um 180 þúsund rúmmetrar.

Starfsmönnum og tækjum hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarnar vikur og eru nú um 30 starfsmenn að vinna í verkinu.

Eftirfarandi tækjakostur er nýttur við framkvæmdirnar:

  • 6 beltavélar
  • 4 jarðýtur
  • 2 trukkur
  • 5 búkollur
  • 2 borvagnar
  • 2 valtarar
  • 1 hefill
  • 1 hjólaskófla
Nýr vegur er að mestu í nýju vegstæði.

Nýr vegur er að mestu í nýju vegstæði.

Framkvæmdir fóru vel af stað eftir áramótin.

Framkvæmdir fóru vel af stað eftir áramótin.

Um 30 manns vinna nú að verkinu.

Um 30 manns vinna nú að verkinu.

Áfram verður unnið að skeringum og sprengingum.

Áfram verður unnið að skeringum og sprengingum.

Framkvæmdir við Vestfjarðaveg  í Gufudalssveit

Í Gufufirði og Djúpafirði hefur Borgarverk unnið að fyllingum og rofvörn. Því verki er lokið, fyrir utan frágang námu og námuvegar og er unnið í viðbótarverkum og lokafrágangi.

Vegna frosts í jarðvegi verður beðið með frágang námu og námuvegar þar til í apríl.

Gert er ráð fyrir forúttekt í byrjun febrúar.

Í Gufufirði er verktakinn Leonhard Nilsen & Sønner as ásamt undirverktaka kominn á svæðið og er vinna hafin við byggingu á 130 m langri brú með greftri fyrir stöplum brúarinnar. Í Djúpafirði verður einnig fljótlega byrjað á byggingu 58 m langrar brúar en verklok fyrir báðar brýrnar eru áætluð í lok árs 2026.

 

Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 1. tbl. 2026. Hlekkur á blaðið.

Bráðabirgðabrú í Gufufirði.

Bráðabirgðabrú í Gufufirði.

Í Djúpafirði hefst fljótlega bygging 58 m langrar brúar.

Í Djúpafirði hefst fljótlega bygging 58 m langrar brúar.