10. júlí 2025
Fram­kvæmd­ir á Kringlu­mýrar­braut á áætl­un

Framkvæmdir á Kringlumýrarbraut á áætlun

Framkvæmdir við nýja sérrein strætó og almenna akrein ganga vel og er verkið á áætlun. Vinnu við að minnka miðeyju og búa til nýja akrein fyrir almenna umferð er á lokametrunum.  Búið er að fræsa malbik af fyrirliggjandi akreinum og í kvöld fimmtudag, verður malbikað að nýju.

Framkvæmdir við nýja sérrein strætó og almenna akrein ganga vel og er verkið á áætlun.

Framkvæmdir við nýja sérrein strætó og almenna akrein ganga vel og er verkið á áætlun.

Næsta skref í framkvæmdunum verður að búa til vasa fyrir strætó norðan við gatnamótin og setja upp strætóskýli ásamt því að klára sérreinina fyrir strætó. Að því loknu verður farið í yfirborðsfrágang. Áætluð verklok eru 15. ágúst.

Sektað fyrir hraðakstur

Hraði í gegnum framkvæmdasvæðið hefur verið lækkaður í 30 km/klst meðan á framkvæmdum stendur. Lögreglan hefur komið á svæðið tvisvar og mælt hraða ökutækja. Í báðum tilfellum voru vel yfir 30% ökumanna yfir hámarkshraða. Merkingar á vinnusvæðum, þrengingar og tímabundin lækkun hámarkshraða eru mikilvægir þættir í að tryggja öryggi starfsfólks ásamt eðlilegum framgangi framkvæmda. Vegagerðin biðlar til ökumanna að sýna tímabundnum takmörkunum þolinmæði og virða hámarkshraða.

Vinnu við að minnka miðeyju og búa til nýja akrein fyrir almenna umferð er á lokametrunum.

Vinnu við að minnka miðeyju og búa til nýja akrein fyrir almenna umferð er á lokametrunum.

Hraði í gegnum framkvæmdasvæðið hefur verið lækkaður í 30 km/klst meðan á framkvæmdum stendur

Hraði í gegnum framkvæmdasvæðið hefur verið lækkaður í 30 km/klst meðan á framkvæmdum stendur

Almennt um verkið

Verkið felst í uppbyggingu á nýrri forgangsrein fyrir strætó á 400 metra kafla á Kringlumýrarbraut, milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar, vestan megin á götunni, með akstursstefnu í suður, uppbyggingu á nýrri akrein fyrir almenna umferð, auk þess sem miðeyja verður minnkuð og endurgerð til að skapa pláss fyrir nýja akrein. Girðing á miðeyjunni verður fjarlægð og í staðinn sett upp vegrið. Allar akreinar á þessum kafla verða fræstar og malbikaðar upp á nýtt. Einnig þarf að taka niður og færa til ljósastaura.

Nýjar strætóstöðvar verða reistar sitt hvoru megin við Háaleitisbraut. Ráðgert er að strætóleið 4 taki breytingum og aki beina leið eftir Kringlumýrarbraut þegar forgangsreinin verður tilbúin. Ferðatími strætófarþega mun styttast um 4-5 mínútur án þess að hafa áhrif á ferðatíma annarra ökutækja.

Vegagerðin, Betri samgöngur, Reykjavíkurborg og Strætó vinna saman að þessu verkefni, sem er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum. Verktaki er D. Ing-verk.

Búið er að fræsa malbik af fyrirliggjandi akreinum

Búið er að fræsa malbik af fyrirliggjandi akreinum

Gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar.

Gatnamót Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbrautar.