Nýjustu Framkvæmdafréttir 4.tbl. 2026 nr. 741 eru komnar á vefinn.

Forsíða Framkvæmdafrétta. Myndin er frá steypuframkvæmdum á brú yfir Gufufjörð.
Í blaðinu er meðal annars fjallað um brúarsmíði í Gufudalssveit, umfangsmiklar sprungu- og lagnaviðgerðir í Grindavík og endurnýjun brúargólfs á Gljúfurá með slitþolinni hástyrkleikasteypu.
Einnig er ítarleg umfjöllun um malbik og klæðingu, þar sem farið er yfir muninn á þessum tveimur helstu gerðum slitlaga á íslenskum vegum, kosti þeirra og galla og þær áskoranir sem fylgja viðhaldi vega.
Í blaðinu er jafnframt ítarlegt viðtal við Sigurð Sigurðarson strandverkfræðing, sem nýverið lét af störfum hjá Vegagerðinni eftir hátt í fimmtíu ára starf. Sigurður hefur komið að uppbyggingu hafna og sjóvarna víða um land, þróað íslenska bermugarðinn sem er þekktur um allan heim og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum erlendis.
Þá er rætt við Völund Jónsson, áhugamann um vita, sem hefur útbúið gagnvirkan vef þar sem hægt er að skoða íslenska vita, sjá þá blikka í réttum takti og lit og kanna hversu langt ljós þeirra nær út á sjó. Völundur nýtti sér opinber gögn og gervigreind við gerð vefsins.