Hátt í tvö hundruð manns tóku þátt í fjölskyldugöngu Flóahrepps á dögunum þar sem gengið var um framkvæmdasvæðið þar sem unnið er að byggingu nýrrar Ölfusárbrúar.

Fjölskylduganga um verkstað Ölfusárbrúar í maí 2026.
Flóahreppur stóð fyrir fjölskyldugöngu miðvikudaginn 13. maí í tilefni af hátíðinni Fjör í Flóa. Hátt í 200 manns voru skráð í gönguna og tekið var á móti gestunum á framkvæmdasvæði Ölfusárbrúar. Farið var með hópinn í nokkrum hollum um svæðið, enda mikilvægt að tryggja öryggi allra með viðeigandi öryggisbúnaði. Höskuldur Tryggvason, verkefnastjóri hjá Vegagerðinni, leiddi hópinn og sagði frá stöðu og framgangi verksins.
Mikill áhugi er fyrir framkvæmdinni sem snýst um færslu Hringvegar úr fyrir þéttbýlið á Selfossi. Byggð verður 330 m löng stagbrú yfir Ölfusá, lagður nýr 3,7 km vegur og byggð ný vegamót austan Selfoss. Að auki má nefna nokkur undirgöng, göngu- og hjólastíga og reiðstíga svo og mikinn fjölda lagna veitustofnana.
Verkið gengur vel en áætlað er að nýr vegur verði opnaður haustið 2028. Búið er að steypa undirstöður landstöpla Ölfusárbrúar og verið er að undirbúa undirstöður turnsins sem mun rísa í Efri-Laugardælaeyju. Unnið er að því að sjóða saman stálbita í brúnna á austurbakka árinnar en allir stálbitar verða komnir til landsins seinnipartinn í júní.
Í meðfylgjandi myndbandi má sjá einn hópinn fá leiðsögn um verkstað í Efri-Laugardælaeyju.

Fjölskylduganga um verkstað Ölfusárbrúar í maí 2026.

Fjölskylduganga um verkstað Ölfusárbrúar í maí 2026.