Alls bárust 135 umsóknir um verkefnastyrk til Rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar upp á samtals 405.830.844 krónur. Rannsóknasjóðurinn hefur 150 milljónir króna til umráða á þessu ári. Tilkynnt verður um úthlutun úr sjóðnum í byrjun mars.
Ólafur Sveinn Haraldsson, forstöðumaður rannsóknardeildar Vegagerðarinnar, segir þennan fjölda umsókna til marks um þann mikla áhuga sem er á rannsóknasjóðnum.
„Rannsóknum Vegagerðarinnar er skipt í fjóra meginflokka; mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag. Áherslur á þessa flokka taka mið að því markmiði rannsóknasjóðsins að stuðla að því að Vegagerðin geti sinnt hlutverki sínu og jafnframt að afla nýrrar þekkingar á starfssviði hennar,“ segir Ólafur Sveinn.
Rannsóknarráð Vegagerðarinnar kemur saman nú í febrúar til að fara yfir umsóknirnar. „Gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um úthlutun í byrjun mars,“ upplýsir Ólafur Sveinn.
Umsóknir skiptust þannig:
· Verkfræðistofur: 65 umsóknir – samtals 157,7 m.kr.
· Vegagerðin: 23 umsóknir – samtals 90 m.kr.
· Háskólar: 25 umsóknir – samtals 68,6 m.kr.
· Aðrar opinberar stofnanir og fyrirtæki: 4 umsóknir – samtals 19,7 m.kr.
· Aðrir: 18 umsóknir – samtals 70 m.kr.
Nánari upplýsingar um Rannsókna- og þróunarstarf Vegagerðarinnar má finna hér á vef Vegagerðarinnar.