8. september 2026
Fækkar um einn í fram­kvæmda­stjórn Vega­gerðar­innar

Framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar verður fámennari í kjölfar breytinga á skipulagi stofnunarinnar. Svæðum Vegagerðarinnar fækkar jafnframt úr fimm í fjögur en breytingarnar eru liður í að einfalda skipulag og stuðla að auknu aðhaldi í rekstri.

Framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar. Efri röð f.v. Svanur G. Bjarnason, svæðisstjóri Suðursvæðis,, Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri Austursvæðis, Pálmi Þór Sævarsson, svæðisstjóri Vestursvæðis, Helgi Gunnarsson framkvæmdastjóri fjármála, Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs,. Neðri röð f.v. Stefán Erlendsson lögfræðingur, Margrét Silja Þorkelsdóttir, svæðisstjóri Norðursvæðis, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri, Bryndís Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs og Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds, framkvæmdastjóri viðhalds- og þjónustusviðs.

Framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar samanstendur af framkvæmdastjórum  og svæðisstjórum stofnunarinnar. Við breytingarnar fækkar um einn í framkvæmdastjórn þegar Höfuðborgarsvæði verður lagt niður sem sérstakt svæði. Hlutverk þess færist yfir á aðrar skipulagseiningar innan stofnunarinnar.

Nokkrir stjórnendur taka jafnframt við nýjum hlutverkum.

  • Guðmundur Valur Guðmundsson, sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra þróunarsviðs, verður framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs.
  • Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds, sem áður var framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs, verður framkvæmdastjóri viðhalds- og þjónustusviðs.
  • Bryndís Friðriksdóttir, sem áður var svæðisstjóri Höfuðborgarsvæðis, verður framkvæmdastjóri þróunarsviðs.
  • Bergþóra Kristinsdóttir, sem gegndi starfi framkvæmdastjóra þjónustusviðs, hefur skipt um starfsvettvang.

Breytingar á skipuriti Vegagerðarinnar

Samhliða breytingum á framkvæmdastjórn verða nokkrar breytingar á skipuriti stofnunarinnar:

  • Þjónustusvið tekur  fær heitið viðhalds- og þjónustusvið og  sinnir bæði  viðhaldi og þjónustu á  samgöngukerfinu
  • Almenningssamgöngur færast frá þjónustusviði yfir á skrifstofu forstjóra.
  • Stoðdeild færist frá mannvirkjasviði yfir á viðhalds- og þjónustusvið.
  • Höfuðborgarsvæði verður ekki lengur sérstakt svæði og hlutverk þess sem snýr að þróun og uppbyggingu samgöngukerfisins á höfuðborgarsvæðinu færist yfir á þróunarsvið.
  • Verkefnastofa um stofnvegi á höfuðborgarsvæði færist yfir á mannvirkjasvið. Verkefnastofa stofnvega heldur utan um undirbúning og framkvæmd stofnvegaverkefna Samgöngusáttmálans.