4. mars 2026
Endur­nýjun lýsingar í Breiða­dals- og Botn­heiðar­göng­um

Lokið er við að skipta út allri almennri lýsingu í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum á Vestfjörðum. Um er að ræða mikilvægt skref í átt að bættri birtu, auknu umferðaröryggi og nútímalegri lýsingarlausnum í göngunum.

Gamla lýsingarkerfið samanstóð af um 30 ára gömlum lömpum, nánar tiltekið  lágþrýstum natríumlömpum (SOX). Slík lýsing einkennist af gulum lit og takmarkaðri litagreiningu, sem getur haft áhrif á skynjun ökumanna á umhverfi sínu. Hvítari lýsing veitir almennt betri litaskil og skýrari sýn, sem eykur öryggi í umferð.

Helsta áskorunin við eldri búnaðinn var sú að framleiðslu SOX-pera hefur verið hætt, sem gerði viðhald og rekstur kerfisins sífellt flóknari.

Betra birtustig bætir umferðaröryggi

Í staðinn hafa nú verið settar upp LED-perur með hvítu ljósi, svokölluðu 4000K ljósi. Með tilkomu LED-tækninnar eykst bæði birtustig og gæði lýsingarinnar verulega. Nýja lýsingin skilar jafnari og skýrari birtu sem bætir akstursaðstæður og stuðlar að auknu öryggi vegfarenda.

Þessi framkvæmd er þó tímabundin lausn. Til framtíðar er stefnt að því að skipta öllum eldri lömpum út fyrir fullbúna LED-lampa og þannig ljúka heildarendurnýjun á lýsingarkerfi ganganna.

Í framhaldi af þessari uppfærslu verður ráðist í að tengja varaafl við fjórða hvern lampa í göngunum. Með þeirri útfærslu mun neyðarlýsing tryggja að hluti ljósanna haldist virkur í allt að eina klukkustund komi til straumleysis. Slík neyðarlýsing er mikilvægur öryggisþáttur og eykur viðbragðsgetu og öryggi vegfarenda við ófyrirséðar aðstæður.